14.1.2012 | 19:22
Skrýtið reikningsdæmi
Ef að meðaltali fóru 548 bílar hvern sólarhring á síðasta ári um göngin, þá er útreikningurinn einfaldur; 548 bílar x 365 sólarhringar = 200.020 bílar.
Samt segir í fréttinni að bílarnir hafi verið "nærri" 400.000. Ekki batnar dæmið þegar fullyrt er að heil milljón manns hafi verið um borð í bílunum.
Það segir að í hverjum bíl (miðað við 200.020 bíla) og í hverri ferð bílsins hafi verið að jafnaði 5 farþegar. Afar ótrúverðug ágiskun - svona miðað við reynsluna annars staðar.
Hálf milljón um Héðinsfjarðargöng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.1.2012 | 18:18
Brjóstapúðamál
eru efst á baugi þessa dagana. Sýnist sitt hverjum um hvort ríkissjóður eigi að kosta fjarlægingu þeirra gölluðu. Sumir virðast ganga út frá því að stór hluti púðanna hafi verið settir upp eftir brjóstakrabbamein og/eða að sjúkratryggingar nái yfir alla púðana.
Nú hef ég engar tölulegar upplýsingar um hvernig þessar "púðaaðgerðir" eru tilkomnar; af nauðsyn eða fagurfræði. En þar sem mér er málið svolítið skylt þá þætti mér fróðlegt að sjá raunverulegar tölur í því efni.
Miðað við það sem ég þó veit um brjóstaaðgerðir vegna krabbameins þá eru flestar þær konur sem ég þekki sem hafa valið brjóstauppbyggingu úr eigin líkamsvefjum. Hinar eru fleiri sem hafa valið að fá sílikonpúða í brjóstahaldarann. Ég er ein af þeim, en af áratugs reynslu myndi ég aldrei gangast undir aðgerð til þess að setja púðann undir húðina. Það þarf nefnilega að skipta um þessa "utanborðspúða" í brjóstahaldarann á eins eða tveggja ára fresti.
9.1.2012 | 18:16
Forsjárhyggjan í algleymi
en mörgum finnst auðvitað ósköp notalegt að bera ekki ábyrgð á eigin málum.
Stjórnvöld eiga það svo líka skilið að til þeirra séu gerðar kröfur um að stýra einkaneyslunni þegar þau hafa sjálf gefið kost á sér í þeim efnum. Samanber sykurskattinn.
Hvað verður það næst; skyndibitaskattur? Eða opinber matseðill vikunnar sem fjölskyldum verður skylt að hlíta, að viðlögðum sektum?
Var annars ekki frétt dagsins að hinir íslensku undirheimar kepptust við að vopnavæðast? Finnst fólki nauðsynlegra að stjórnvöld sinni frekar holdafari almennings en háttalagi undirheimaliðsins?
Aðgerða er þörf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2012 | 14:22
Einhliða bann-viðræður?
Svartfugl friðaður í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.12.2011 | 17:28
Nauðungarflutningar
Nú hefur mér verið tilkynnt af Póstinum að búið sé að flytja mig úr R-107 í R-101.
Enginn kostur gefinn á andmælum.
Ég sé því mína sæng útbreidda; eftirleiðis tilheyri ég þessu margumtalaða kaffi-rjóma-lepjandi miðbæjarliði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.12.2011 | 18:16
Snjór og meiri snjór
og sér ekki fyrir endann á samkvæmt veðurspánni.
Hvað varð um hina hnattrænu hlýnun, sem er talin svo alvarleg að hún er orðin féþúfa stjórnvalda hérlendis og í ESB?
Eða er almættið aðeins að uppfylla óskir þeirra sem þola ekki jól nema þau séu hvít? Ég segi nú bara eins og maðurinn forðum; hafðu vara á óskum þínum - þær gætu ræst.
Það er alla vega aðeins sanngjarnt að fá afslátt á kolefnisgjaldinu. Eða fá fyrir það aðstoð við snjómoksturinn. Er búin að moka útitröppurnar tvisvar í dag með sama árangri og Bakkabræðra þegar þeir báru sólina inn í húfunum.
Svo hafa snjóruðningstæki á götu og gangstétt myndað samsæri um að fela litla sparneytna bílinn minn í snjóskafli. Sennilega þarf ég að huga að því að fjárfesta í öflugum jeppa.
Ætli það fáist harðbýlisstyrkur út á jeppakaupin þegar hnatthlýnunin hefur klikkað?
19.12.2011 | 19:58
Engan þarf að undra þessa neitun
Sautján evruríki ætla að leggja í púkkið það sem svarar að meðaltali 8.8 milljarða punda á hvert þeirra. En Bretland; ekki-evru-ríki, á að punga út með 25 milljarða punda!
Eru menn með öllum mjalla þarna á meginlandinu?
Bretar loka á AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.12.2011 | 18:41
Franskir eru ekki að gera ESB neinn greiða
með því að espa Frjálslynda breska ESB sinnaða flokkinn upp á móti sér.
Það er ekki ofsögum sagt af vandræðagangi ESB apparatsins þessa dagana.
Bretar svara Frökkum fullum hálsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.12.2011 | 17:09
Heimasætan bíður óróleg
á meðan forráðamenn hennar semja við væntanlega tengdafjölskyldu.
Nú hefur heimasætan beðið í hátt á þriðja ár, en er að gerast óþolinmóð, því einungis 1/4 hluta reglanna, sem tengdafjölskyldan setur, hafa verið samþykktar af hennar fólki. Henni er sagt að verið sé að semja um einar 35 höfuðreglur sem henni verður gert að fylgja í hjónabandinu, en hún hefur þó samt aðeins óljósa hugmynd um hverjar þær eru.
Heimasætan vonar þó að þegar allt er klappað og klárt; öll hennar fjármál, forsjá og sjálfsákvörðunarréttur hafa verið afhent tengdó, þá muni henni gefast kostur á að segja hátt og snjallt NEI við altarið. Samt er hún ekki örugg - hvað ef presturinn er annað hvort heyrnarlaus eða þykist ekki heyra?
Frá upphafi var heimasætan aldrei alveg sannfærð um að hjónabandið gæti lukkast, en eftir að sögur fóru ítrekað að berast um ístöðuleysi brúðgumans líst henni nú enn síður á ráðahaginn. Ætti hún e.t.v. að fara fram á að þessum hjónabandshugmyndum verði frestað um sinn?
Skref áfram í viðræðum við ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2011 | 18:13
Að dreifa valdinu
hefur alltaf þótt happasælast - sérstaklega þó í lýðræðisríkjum.
En fjármálaráðherrann er auðvitað einu skrefi á undan okkur hinum með þessa samræmdu yfirstjórn fjármálanna. Miðað við brölt valdaþjóðanna í ESB þessa dagana, verður öll fjármálayfirstjórn hvort sem er komin til Brussel og þá þurfum við bara einn stimpilpúða hérlendis.
Hver er annars staða lýðræðisins á "Íslandi í dag"?
Yfirstjórn efnahagsmála á einum stað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)