19.7.2014 | 16:42
Með hvaða liði heldur þú?
Það er sorglegt að sjá ýfingar/stríðsátök erlendis endurtaka sig á íslenskum vefmiðlum.
Halda mætti að borgarastríð í Sýrlandi, Írak, Úkraínu, Ísrael og nágrenni í "Palestínu" séu eins konar útgáfur af HM í fótbolta. Í stað þess að sameinast um að biðja um frið og friðarviðræður þar sem þessar hörmungar gerast, stillir fólk sér upp sem MEÐ eða á MÓTI.
Sjaldan veldur einn þá tveir deila. Auk þess sem stríðsátök eru harmleikur en ekki keppnisíþrótt!
Væri ekki ágætt að hafa það í huga?
19.6.2014 | 13:17
Hvað þýðir
..."Ekki þarf að skila þeim gjaldeyri sem þegar hefur verið safnað"? Að ekki þurfi heldur að gefa endurgreiðslur upp til skatts? Að endurgreiðslurnar megi leggja beint inná reikninga erlendis?
Tekjuskattur er dreginn af hverri útborgun til okkar sem höfum safnað séreignarlífeyri hjá íslenskum lífeyrissjóðum og bönkum. Við njótum skattfríðinda á meðan við erum að safna en það gera líka þeir sem fá sinn sparnað sendan úr landi í gjaldeyri.
Skilaskylda er eitt en tekjuskattsfrádráttur annað. Þessari spurningu sé ég ekki svarað í umfjöllun fjölmiðla um málið enn sem komið er.
Spurt og svarað um lífeyristryggingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2014 | 14:34
Nema hvað!
Réðust á mann sem góndi á þær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.2.2014 | 11:09
Svona á að gera þetta!
Hérlendis eru bílar kaffærðir í snjó, salt- og tjörudrullu af hraðskeiðum þeytisnjósköfurum. Sem brjóta oft spegla og ljósahlífar bílanna auk þess að skemma lakkið.
Sjá snjóhreinsun við bílastæði á mynd númer 4 við fréttina.
Mannskætt óveður vestanhafs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2013 | 15:58
Vísa á þjófum úr landi!
Það gengur ekki að þessi erlendu þjófagengi komist upp með að stela því sem þeim þóknast af íslenskum almúga.
Eða að bæta gráu ofan á svart með því að fangelsa þjófana og láta brotaþolana, að auki, greiða fangelsisuppihald þeirra með sköttum sínum.
Einfaldast og ódýrast er að senda liðið umsvifalaust til síns heima og meina þeim endurkomu til landsins.
Þjófarnir lyktuðu af hráolíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2013 | 18:09
Eru hraunavinir örlagatrúar?
Það eru heilu hraunflákarnir víða um land. Alls staðar þar sem hraun hefur áður runnið getur hraun runnið aftur. Yfir gamalt hraun, jafnvel, og reyndar töluverðar líkur á því víða.
Halda hraunavinir að verndun gamals hrauns komi í veg fyrir að þar renni hraun aftur?
Þetta var náttúrulega bein ógnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2013 | 19:06
Göfugt markmið
Skotland útblásturslaust 2050 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2013 | 18:46
Tungumálaörðugleikar
koma stundum í góðar þarfir.
Mér varð það á að hlæja upphátt þegar ég heyrði ávæninginn af þessari frétt á Bylgjunni í dag. Var þó önnum kafin við "alvarlegt" vinnuverkefni.
Sá fyrir mér verkefnaskipunina: "Clean (klín) green (grín) á Hofsvallagata"...
Hreinsuðu málningu fyrir mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2013 | 17:04
Sigmundur er hrekkjalómur!
Nú ærast stjórnarandstæðingar - ýmist af bræði eða hneykslun - vegna þess að þeir þykjast vita hver tíundi ráðherrann verði.
Vonandi verður hinn nýi ráðherra ekki nafngreindur fyrr en eftir viku eða svo...
Nýr ráðherra kynntur fljótlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.8.2013 | 18:36
Rétt ákvörðun
Eignarskattur, auðlegðarskattur eða hvað þessi eftirá álagning er kölluð, er eins konar eignaupptaka.
Tekjurnar sem skapa "auðinn" á að skattleggja þegar þær falla til.
Eftir það ætti fólki að vera frjálst að spara jafnt sem eyða því sem afgangs er.
Auðlegðarskattur ekki framlengdur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |