Beitin á næstu bújörð

Ætlast írar og skotar til þess að íslendingar smali makrílnum í íslensku lögsögunni og sendi hann aftur til síns "heima"?

Eða er venjan þarna syðra að bændur beiti búfénu sínu á jarðnæði nágrannans að vild, án endurgjalds og án tillits til þess hvort viðkomandi jörð þoli áganginn?


mbl.is Írar vilja aðgerðir gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endursýning: Ísland forfeðra okkar.

Eldur er uppi eins og oft áður.  Nú í Grímsvötnum og eldstöðin spýr ösku og eimyrju yfir byggðirnar.

Íbúum eru bannaðar allar flóttaleiðir.  Hvort heldur sem er gangandi, á hesti eða bíl.  Sjóleiðin er ekki valkostur á stærstum hluta svæðisins.

Öskuskýið lokar öllu á suðurlandinu, hávaðarokið á suð-austurlandinu,  stórhríðin og snjóþyngslin þar fyrir norðan.

Þrátt fyrir alla nútímans tækni er ástandið ekkert skárra en  á öldum áður - samt segir tímatalið okkur að hérlendis eigi að vera komið sumar.  

Nú vitum við hvernig langa-langa-langa-afi/amma höfðu það hér í den.


"Encampado virtual"

eða svo hljóðaði ein athugasemd dagsins á vefsíðunni:  www.ustream.tv/channel/motionlook

Mótmælendur hafa nefnilega verið að síðan í gær.  Hafa nú síðdegis hitað upp fyrir laugardagskvöldið.  

Þeir sem hafa áhuga geta fylgst með í beinni útsendingu með því að velja tengilinn hér að ofan. 

(Því miður bannar Firefox mér að tengja beint  Wink

 


mbl.is „Alheimsbylting“ heldur áfram á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborgin var fjarlægð!

Eitt af kosningaloforðum núverandi ríkisstjórnar var að reisa skjaldborg um heimili og fyrirtæki. 

Nú hefur komið í ljós að skjaldborgin var þá þegar til staðar og gert hafði verið ráð fyrir henni með neyðarlögum ríkisstjórnar Geirs Haarde. 

Ríkisstjórnarflokkarnir þurftu því ekki að gefa slíkt kosninga- eða stjórnvaldsloforð - hvað þá svíkja það.

Allt varðandi þetta ferli mun koma fram í skýrslu fjármálaráðherra sem hann lagði fram á Alþingi fyrir páska.

Vonandi lesa þingmenn þessa skýrslu vel og vandlega og ræða hana síðan efnislega í beinni útsendingu í þinginu.

En mér er orðin spurn; getur núverandi ríkisstjórn virkilega ekki gert NEITT af viti?

 

 

 

 


Samsærisgildra?

Ekki ólíklegt, og þó er undirrituð enginn sérstakur aðdáandi Strauss-Kahn. Þarna virðist sá gamli hafa legið vel við höggi - einn á ferð.

Minni bara á að það er ekki að ástæðulausu að ráðamenn ferðast almennt ekki einir, heldur ýmist með maka sínum eða umkringdir nánustu samstarfsmönnum.


mbl.is Samsæri gegn Strauss-Kahn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villandi yfirlýsing

Nettóútgjöld Íslands er ekki það sama og nettóútgjöld ríkissjóðs.

Ríkissjóður greiðir brúttó ákveðna upphæð í aðildargjald sem miðast við tekjur ríkissjóðs. Á móti koma svo hinir ýmsu "vonar"styrkir frá samkeppnissjóðum ESB sem eru greiddir einkaaðilum - þegar og ef þeir eru veittir.

Utanríkisráðherranum væri nær að halda sig við staðreyndir.


mbl.is 3 milljarða nettóútgjöld við ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óboðnir gestir, tvífættir og fjórfættir

Greinilega  fer báðum tegundum fjölgandi.  

Skemmtileg tilviljun að skoðanakönnun Bylgjunnar varðandi ísbirni komi upp á sama degi og þetta þjófnaðarmál.  Það má nefnilega vel yfirfæra ísbjarnarspurningarnar á þessa lánlausu tvífætlinga:

a) skjóta þá strax
b) svæfa og senda til síns heima
c) læra að lifa með þeim

Svör a) og b) eru hönnuð til þess að leysa snarlega allan vanda. 

En c) kallar á vopnaburð.  

Allflestir kjósa frekar taka með sér börnin í berjamó en riffilinn.  En ef hugmyndin er að  læra að lifa með ísbjörnum, líkt og menn gera á Svalbarða, þá er það varla þorandi.

Spurningin er bara hvernig ætlast sé til að fólk verjist hinum tvífættu vörgum?

 

 

 


mbl.is Staðnir að þjófnaði daginn eftir komuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til umhugsunar

Ef raunin er sú að þessi árás á heimili innríkisráðherrans hafi verið gerð af hálfu "aðstandenda" hælisleitenda - nú eða af þeim sjálfum, þá klingja varúðarbjöllur.

Vel má vera að íslenska kerfið sé svifaseint í þessum málum, en yfirleitt virðist töf á afgreiðslu mála einstakra manna helst stafa af því að tilskilin gögn vantar sem sanna að viðkomandi falli undir skilgreininguna "hælisleitandi".

En hvernig sem því er háttað, þá er eitthvað mikið að ef menn  beita ofbeldi til þess að verða sér úti um landvistarleyfi.  Hvort sem það er með árásum á ráðamenn persónulega eða innanhúss hryðjuverkum hjá þeirri stofnun sem þó helst styður að velferð hælisleitenda.

 

 

 


mbl.is Ráðist á heimili Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strax komin eggjahljóð í stjórnarliðið?

Þá er eins víst að því sé farið líkt og fuglunum á þessu síðbúna vori; ný hreiðurgerð er í bígerð.
mbl.is Stöndum betur utan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með vatns- og fráveitugjöldin?

Hækkun heita vatnsins INN er aðeins hálfdrættingur í prósentum talið á við hækkun heita (og kalda) vatnsins ÚT - frá og með 1. maí.

Á að þaga um það þar til skrifað hefur verið undir kjarasamninga?


mbl.is OR hækkar verð á heitu vatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband