11.7.2011 | 19:52
Fiskneytendur settir í vanda
Ef þeir kaupa fisk frá Íslandi, þá er hugsanlegt að hvalveiðar tengist framleiðandanum.
Ef þeir kaupa fisk frá Noregi, þá er eins víst að fiskurinn tengist einnig hvalveiði, einhvers staðar.
Eitt er víst; ef fiskneytendur snúa sér að kjúklingum, þá er öruggt að maturinn þeirra tengist ekki hvölum á neinn hátt. Þar að auki munu kjúklingar í Evrópu vera ódýrari en fiskur.
En vissara er þeim þó að hugsa ekki mikið um það hvernig kjúklingakjötið er framleitt...
![]() |
Styðja hvalveiðar án vitundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.7.2011 | 15:34
"Nú kem eg eigi leingur fyrir mig því kvæði"
Verður utanríkisráðherra vor einhvern tíma í sömu stöðu og "skáldið" gagnvart "konúngi" sínum að Stiklastöðum?
Var Kiljan forspár í Gerplu sinni?
![]() |
Þurfum ekki sérstaka undanþágu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.7.2011 | 17:06
Æsist nú leikurinn
Fann þernan notaðan smokk í ruslakörfu á baðherbergi svítunnar eftir að DSK hafði haft hjá sér aðkeypta þjónustu nóttina áður?
Þurfti hún að taka sér þennan góða umhugsunartíma til þess að ákveða hvernig hún gæti nýtt sér "sönnunargagnið"?
Bíð spennt eftir 4. þætti þessa sápudrama.
![]() |
Laug í framburði sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.6.2011 | 14:34
Það er vandlifað í henni veröld
- sérstaklega ef hún er innan EES samningsins.
Fyrr í vikunni birtist frétt um úrskurð ESA: "Brotið er á réttindum og skyldum vegna starfsmanna erlendra fyrirtækja" Í því tilviki var réttur starfsmannanna talinn of mikill.
Í dag önnur frétt um annan úrskurð ESA: "Brotið á farandverkamönnum"
Þar er réttur starfsmannanna talinn of lítill.
Nú hefur Ísland verið aðili að EES samningnum í um það bil 17 ár. Hvers vegna er ESA núna fyrst að úrskurða um þessi meintu brot?
22.6.2011 | 14:24
Freistingar í boði AGS
eru ómótstæðilegar - ekki síst fyrir skattaglaðan fjármálaráðherra.
Ef einhverjum dettur í hug að hið eina sanna virðisaukaskattþrep framtíðarinnar muni miðast við núverandi matar-, hitaveitu- og bókaskattþrep; 7%, þá þarf viðkomandi að hugsa sig um tvisvar. Öllu líklegra er nefnilega að skatturinn verði hífður upp í núverandi 25,5% skattþrep og þannig samræmdur af öllum vörum og þjónustu.
Svo má ekki gleyma hagsmunum ESB, því eftir (hugsanlega) ESB-aðild reiknast ákveðið hlutfall af virðisaukaskatti í landinu sem hluti af árlegu aðildargjaldi.
![]() |
Matarskattur til skoðunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.6.2011 kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
11.6.2011 | 15:51
Tvískinnungur
Ekki má neyða hollenska einkabanka til eins né neins.
Hefur seðlabankastjóranum þá ekki dottið í hug að láta hollenska þingið setja lög sem skikkar hollenskan almúga til þess að leggja til björgunarféð?
Svona "à la Icesave"
![]() |
Bankar verði ekki neyddir til björgunaraðgerða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2011 | 13:54
Rólegan æsing
Afstaða ESA var ljós löngu fyrir seinna NEI-ið og líka það að dómstólaleiðin væri eina rétta leiðin.
Það sem kemur á óvart er að ESA stofnunin ætlar sjálf að kæra til EFTA dómstólsins. Er það "ethical"?
Vonandi fara íslensk stjórnvöld þó ekki á límingunum við þessar fréttir. Næsta skref er að hefja undirbúning á dómsvörninni.
![]() |
Þriggja mánaða Icesave-frestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2011 | 13:56
Aðeins sanngjarnt að sleppa sumarþingi þetta árið
... og svo má bæta þingliðinu upp sumarþingin undanfarin ár og gefa þeim frí frá haust- og vetrarþingum næstu tvö árin. Fordæmi eru fyrir því í atvinnulífinu að yfirvinna er greidd með frídögum. Því ekki á Alþingi líka?
Við kjósendur sjáum ekkert athugavert við þá tilhögun.
![]() |
„Held að menn séu búnir að fá nóg af sumarþingum“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2011 | 16:38
Ótrúlegt verð - ótrúleg þjónusta
Flugvél á "vegum" Iceland Express lendir í fyrsta sinn í Boston - og er að meira segja á áætlun. Undur og stórmerki.
Minna er því hampað að á sama tíma er IE með samning við ónefnda ferðaskrifstofu um að skaffa flugvél til Tenerife í dag, með margra mánaða fyrirvara. Áætluð brottför var kl. 07:10 í morgun - en hefur verið frestað til kl. 23:50 í kvöld.
Þar er einn tapaður (rándýr) orlofsdagur fyrir allar þær fjölskyldur sem enn bíða eftir að komast í fríið sitt.
* Nýjustu fréttir af ferðalöngum (sem hafa beðið í Leifsstöð síðan í morgun) herma að nú hafi Spánarfarar fengið hótelmiða í Keflavík, því líklega munu þeir ekki fá flugfarkost fyrr en einhvern tíma í nótt - í besta falli.
![]() |
Iceland Express til Boston |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.5.2011 | 13:11
Þetta er ljótt - virkilega ljótt!
Ef myndbandið sem fylgir fréttinni er dæmigert, þá eru mótmælendur vopnlausir og rétta fram vopnlausar hendur sínar því til sönnunar en hljóta þung kylfuhögg að launum frá vel vörðum lögregluþjónum.
Það er vel skiljanlegt að mótmælendur hafi slasast í tugavís, en hvernig slösuðust þessir 37 lögreglumenn?
![]() |
Mótmælendur miskunnarlaust barðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |