Samsærisgildra?

Ekki ólíklegt, og þó er undirrituð enginn sérstakur aðdáandi Strauss-Kahn. Þarna virðist sá gamli hafa legið vel við höggi - einn á ferð.

Minni bara á að það er ekki að ástæðulausu að ráðamenn ferðast almennt ekki einir, heldur ýmist með maka sínum eða umkringdir nánustu samstarfsmönnum.


mbl.is Samsæri gegn Strauss-Kahn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ath: Bandaríkjastjórn verður tæknilega gjaldþrota, Grikkland mögulega líka og Portúgal á að fá stærsta björgunarpakkann hingað til. Allt átti þetta að eiga sér stað Á MORGUN. Það er nánast útilokað að tímasetningin á þessum sirkus sé tilviljun.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.5.2011 kl. 20:03

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Guðmundur, HVOR græðir á því að taka aðalmann IMF úr umferð - USA eða ESB?

Eða get ég svarað spurningunni sjálf? Þar sem ESB hefur sennilega ekki tök á neinum leikfléttum á bandarískri grund, beinast böndin að heimamönnum. Right?

Kolbrún Hilmars, 15.5.2011 kl. 20:34

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Svarið liggur í því hver tekur við sem starfandi framkvæmdastjóri. Það mun vera Bandaríkjamaðurinn John Lipsky, fyrrverandi aðalhagfræðingur og næstráðandi Wall Street bankans JPMorgan, og útsendari IMF í Chile 1978-80 undir Pinochet.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.5.2011 kl. 23:22

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Srauss er ekki á vinsældalista mínum,en enginn á að þurfa að þola órétt. Nýustu fréttir herma að þjónustustúlkan hafi við sakbendingu,þekkt kallinn.

Helga Kristjánsdóttir, 16.5.2011 kl. 00:36

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Framhaldsfréttir birtust auðvitað af þessu máli í dag. 

Merkel vill að IMF verði áfram stjórnað af evrópumanni og segist hafa góðan kandídat í hlutverkið. 
Fulltrúi Hvíta hússins segir grettur á svip "við höfum enn trú á IMF sem stofnun".   Enda er staðgengill Strauss-Kahn USA maður.
Þessar voru pólitísku fréttirnar.

Þær persónulegu:
Nýir kærendur í hlutverki gamalla þolenda gera vart við sig - líkt og venjan er.
Strauss-Kahn þarf að sæta allt að 25 ára fangelsi verði hann fundinn sekur.  Semsagt; ekkert óvænt þar þrátt fyrir allt.  

En það er himinn og haf - og þá meina ég ekki landfræðilega, á milli íslenskrar og amerískrar refsilöggjafar.

Kolbrún Hilmars, 16.5.2011 kl. 17:45

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

PS.  Guðmundur, ný frétt núna um að allir fjármálaráðherrar ESB ríkjanna hafi lýst yfir einróma stuðningi við að IMF veiti gjaldþrota ESB löndum neyðarlán.  Eru kanar  hræddir um að sjóðurinn verði uppurinn þegar röðin kemur að þeim að þiggja?

Kolbrún Hilmars, 16.5.2011 kl. 18:06

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ég tek ekki afstöðu til samsæriskenninganna. Þar getur spuninn komið frá hvort sem er US eða Frans. Frakkar eru ólmir yfir að hafa misst rósin úr Vinstra-hnappagatinu og þar tekur enginn upp hanskann fyrir konuna: "S-K hefði bara átt að vera varkárri".

Enginn gerði athugasemd við að Maddoff væri leiddur fyrir dómara í handjárnum en nú þykir óviðeigandi að það sé gert við mann sem sagður er hegða sér eins og "óður simpansi á fengitíma".

Hafi þetta verið gildra þá hafa menn einfaldlega nýtt sér hans eigin hegðun til að veiða hann.

Og því ætti að vera í lagi að bíða aðeins með spunann?

Ragnhildur Kolka, 16.5.2011 kl. 20:07

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ragnhildur, þetta með konuna mun koma í ljós í réttarhöldum.  Ef við lítum á allt þetta mál eingöngu út frá ofbeldinu því  þá er það einfalt; karlinn fær sinn dóm - eða ekki, eftir atvikum.

En ef við setjum þetta í pólitískt samhengi; af hverju hefur maðurinn fengið að valsa um óáreittur með sinn "kinkyhátt" öll þessi ár?  Þangað til núna, allt í einu!  Þetta er jú yfirmaður IMF, sem hefur örlög þjóða í hendi sér.

Kolbrún Hilmars, 16.5.2011 kl. 20:38

9 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Kolbrún, hann er ríkur, hann er valdamikill og stjórnmálaafl í heimalandi hans sá hann sem framtíð sína. Þess vegna hefur hann fengið að valsa frítt öll þessi ár. En umfram allt það sem heldur öllu þessu saman er viðhorf Frakka til kvenna. Framhjáhald þykir sjálfagt og ein og ein nauðgun varla talin saga til næsta bæjar. Hann hefði aldrei verið sóttur til saka í Frakklandi fyrir að nauðga herbergisþernu frekar en tilraun hans til að nauðga frönsku blaðakonunnar leiddi til sakbendingar. 

Telegraph var með video af viðbrögðum Frakka í gær. Viðmælendur lögðu allir áherslu á vandræðin sem upp væru komin á Vinstrvængnum og því hefði hann átt að vera varkárari. Ekki að hann hefði átt að leggja af nauðganir, Það fólst í orðunum að hann hefði aðeins átt að vera varkárari hvar og hvernig hann nauðgaði.

Má vera að þessi uppá koma geti komið Kananum vel en ef hann er sekur, þá er tímabært að taka hann úr úmferð. 

Ragnhildur Kolka, 16.5.2011 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband