21.7.2012 | 12:45
Íslandsvinir tjá sig
Kínverski athafnarmaðurinn Huang Nubo fór ófögrum orðum um Íslendinga þegar hann ávarpaði stjórnendur og nemendur CEIBS viðskiptaskólans í Sjanghæ á dögunum. Þar sagði fjárfestirinn að Íslendingar væru veikgeðja og sjúkir. (Vísir.is 21/7´12)
Adam Aamer og Alhawari Agukourchi hafa verið hælisleitendur á Íslandi í um fjóra mánuði. Síðan þeir komu hafa þeir ítrekað reynt að koma sér af landi brott.
Ef við fáum tækifæri munum við reyna það aftur og aftur því við viljum komast brott af þessu landi," segir Adam.
Þeim líkar ekki vistin hér á landi.
"Það er bara ein hugsun sem kemst að hjá okkur. Við þurfum að komast burt. Hér erum við í búri. Alveg eins og páfagaukar í búri." segir Adam." (Vísir.is 21/7´12)
Óvenjuleg hreinskilni og algjör óþarfi að spyrja "How-do-you-like-Iceland?"
18.7.2012 | 19:42
Nubomál
Nú er Nubo kominn aftur í umræðuna. Innanríkisráðherrann reynir að verjast þrýstingi sveitarstjórna norðaustan. Eflaust ekki að ástæðulausu, enda stefnir í að 40 ára leigan verði 80 ára leigan.
Á núgildandi verðlagi er landleigan aðeins 24,8 milljónir á ári. Svipað og íslenskt meðalfyrirtæki á góðum stað í höfuðborginni greiðir í dag.
Fréttablað dagsins fjallar um fjárfestingaráætlanir Nubos á Fjöllum á bls 4; lúxushótel, golfvöllur, hestaferðir, fjallgöngur, svifdrekaflug, alvöruflugvöllur og 100 einbýlishús. Þar er að vísu ekki minnst á sundlaugar, heita potta, tennisvelli og fleira góðgæti.
En smáa letrið í fréttinni hefur sennilega enginn lesið nema innanríkisráðherrann:
"Huang kveðst vonast til þess að sala á einbýlishúsunum, að mestu til ríkra Kínverja, muni nægja til þess að greiða upp verkefnið".
Það er nefnilega það!
10.7.2012 | 13:40
Fordómar gagnvart íslendingum?
Hafa verið færðar sönnur á að hælisleitendum eða flóttamönnum allrahanda sé boðinn verri kostur hér á landi en annars staðar í Evrópu?
Það er vel skiljanlegt að sumir láti glepjast til þess að koma til Íslands ef litið er á landakortið. Þeir eru þó ekki vel upplýstir ef þeir halda að hér sé rétti stökkpallurinn vestur yfir og fyllast eðlilega gremju í garð lands og þjóðar þegar þeir uppgötva hvað þessi eyja í norðurhöfum er í rauninni afskekkt.
Viðkomandi er enginn greiði gerður með því að senda þá ekki jafnóðum til baka til Evrópu. Og okkur er heldur enginn greiði gerður með því að halda þeim hér nauðugum - bæði hvað varðar kostnað og orðspor.
Fordómar gagnvart flóttamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2012 | 16:31
Hverjir eru þessi "við" ?
Sem virðast ekki hafa fylgst með fréttum af vandræðum ESB apparatsins undanfarna mánuði og þurfa nú - allt í einu - að setjast niður og "ráða ráðum okkar" og "við þurfum að endurmeta stöðuna"?
Ekkert í þessu orðalagi bendir til þess að SJS sé orðinn afhuga ESB aðild. Sennilega sér hann bara ný tækifæri felast í því að bæta Íslandi á ESB bálið.
Rökstuðning þess efnis fáum við eflaust að heyra strax eftir helgina. Það á jú allt að gerast "eftir helgi" eins og vant er.
Gætum þurft að endurmeta stöðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2012 | 17:10
Skandall!
Tekjuhæstu launþegar landsins tapa launum.
Skatturinn tapar framlagi þeirra.
Landið í heild tapar útflutningstekjum.
Hreint ekki sniðugt.
Auðvitað eiga útgerðarmenn að leggja upp laupana, selja skipin sín úr landi og jafna með því skuldabaggann sinn og fara síðan á bísann.
Svo getum við stofnað Útgerðarfélag ríkisins.
Frá grunni. Hvað kosta annars öll þessi skip?
Hafa tapað rökræðunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.5.2012 | 18:03
Hvað með almannahagsmuni?
Ætti ekki að vera heimilt að halda öllum þeim innbrotsþjófum sem staðnir eru að verki í gæsluvarðhaldi þangað til dómur hefur fallið? Ekki aðeins á grundvelli rannsóknarhagsmuna heldur einnig á grundvelli almannahagsmuna.
Eitt er víst; almenningur á betra skilið en að síbrotaþjófar valsi um frjálsir þannig að enginn getur verið óhultur fyrir heimsóknum þeirra á eigin heimili.
Þjófar í gæsluvarðhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.5.2012 | 18:40
Ertu að moka?
Sv: Réttir úr bakinu, með braki, og lítur á spyrjandann. Sem er lítill stubbur, á að giska 5 ára.
Sv: Já, ég er að moka.
Sp: Af hverju ertu að moka?
Sv: Yfir kartöflurnar sem ég er að setja niður.
Sp: Þögn.
SV: Hvar áttu heima?
Sp: Þarna (bending).
Samtali lauk þarna með flótta spyrjanda.
Segið þið svo að það sé ekki gaman að setja niður kartöflur...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
13.5.2012 | 16:34
Blekkingin um fyrirheitna landið
"...þetta [Ísland] er ömurlegasta land sem ég hef komið til" segir flóttamaðurinn Azzam frá Marokkó í viðtali við helgarblað Fréttatímans.
Og Azzam hefur samanburð: Fyrst flúði hann frá heimalandi sínu til Spánar. Þar var komið vel fram við hann, fékk að sækja skóla og læra spönsku. Þaðan flúði hann þó til Belgíu, eftir að hafa heyrt að hann yrði 18 ára sendur til baka heim. Frá Belgíu fór hann til Danmerkur. Sótti þar um hæli en var synjað og rekinn burt úr landinu til 10 ára. Þá flúði Azzam til Noregs og sótti einnig um hæli þar. Þegar norskir sögðust ætla að senda hann til baka til Danmerkur, flúði hann til Svíþjóðar. Þar heyrði hann að Ísland væri gott land og ákvað að flýja til Íslands.
Þar með lauk flóttaferlinum endanlega því frá Íslandi kemst Azzam hvorki lönd né strönd af sjálfsdáðum.
Annað og alvarlegra kemur þó fram í viðtölum Fréttatímans við Azzam og þrjá félaga hans sem svipað er ástatt um. Þeir segja um Fit Hostel:
"Þarna eru karlar um fimmtugt, alls konar karlar sem drekka mikið og eru með mikil læti og það er eiginlega hræðilegt að þurfa að búa innan um þá" og
"Það eru drykkjumenn á Fit Hostel og ég er hræddur við þá. Þar er mikið um ofbeldi og menn stela hver frá öðrum".
Þarf ekki að stokka upp í þessum hælisleitendamálum - t.d. með því að veita meira fjármagni í málaflokkinn til þess að hraða málameðferð. Skárra er að senda viðkomandi strax til baka til Evrópu þaðan sem þeir komu en að hægdrepa þá í brennivínslegi í Suðurnesjaeinangrun.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.5.2012 kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.5.2012 | 16:02
Get fallist á rök Dögunar - en
... drengirnir koma frá Finnlandi þar sem þeir höfðu leitað hælis og eru taldir eldri en þeir segja sjálfir.
Drengina hefði mátt dæma í skilorðsbundið fangelsi hér fyrir fölsun (þeir eru að öllum líkindum sakhæfir) og senda síðan beinustu leið aftur til Finnlands - þar sem þeirra mál eru til meðferðar.
Mótmæla dómi héraðsdóms | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2012 | 12:19
Mætti Núbo skjóta refi?
Rétt hjá Ögmundi - það er afar óviðeigandi að auðmaður kínverja hælist yfir því í sínum heimafjölmiðlum að hafa snúið á íslensk stjórnvöld. Lítillæti og kurteisi gagnvart íslenskum "gestgjöfum" þarf greinilega ekki að viðhafa.
En segjum sem svo að allt gangi Nubo að óskum og fyrirtæki hans fái 99 ára ódýra húsaleigu að Grímsstöðum á Fjöllum:
Hvort munu þá kínversk lög gilda á leigulandinu eða lagatilskipanir ESB?
Huang fagni ekki of snemma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |