16.9.2012 | 15:36
Reykjavík norður og Reykjavík suður
Illugi leiddi listann í RN og Guðlaugur Þór í RS í þingkosningunum 2009.
RN Illuga fékk 21,4% fylgi(36,4% árið 2007),tapaði 2 kjördæmakjörnum þingmönnum.
RS Guðlaugs fékk 23,2% fylgi(39,2% árið 2007), tapaði 2 kjördæmakjörnum.
Í hvoru kjördæminu mun Hanna Birna gefa kost á sér til þess að leiða listann næsta vor? Ef henni leyfist það og felli annan hvorn þessara heiðursmanna í prófkjörinu, verður gaman að sjá samanburðartölur RN og RS eftir kosningar.
Þrjú vilja leiða listann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.9.2012 | 16:46
Verðmyndun í innflutningi
Því hefur verið lofað að ef íslendingar gangi í ESB muni matvöruverð lækka umtalsvert.
Reyndar ekki neinar þær vörur sem stundum eru kallaðar "staples", eða grunnvara. Svo sem kornvörur, hrísgrjón, salt, sykur, kaffi, kakó. Það eru aðeins kjötvörur, sumar hverjar, sem átt er við - sem skipta ekki eins miklu máli fyrir heimilisbókhaldið og látið er í veðri vaka.
Öruggt er að margfalt stærri bú og stærri markaður geti framleitt, ja, t.d. ódýrara kjúklinga- og svínakjöt, auk grænmetis, en gerist á Íslandi. Til sölu á heimamarkaði. En dæmið er ekki svo einfalt.
Það kostar nefnilega að flytja afurðina yfir hafið. Svo mikið að yfirleitt velja menn frekar skipaflutning en flug. Íslenski smásalinn er engan veginn samkeppnisfær við smásalann í upprunalandinu og þarf því að láta grunnvöruna (staples) greiða niður kassaverðið. Þessi tímafreki innflutningur á ferskvörum bitnar líka á gæðunum, eins og flestir vandlátir kannast við.
Verðmyndun innflutts varnings er nefnilega reiknuð þannig út að lagt er saman verksmiðjuverðið, flutningskostnaður alla leið frá framleiðslustað, farmtryggingar, þjónustugjöld vegna innflutnings, virðisaukaskattur í tolli og tollur eftir atvikum, svo og sölukostnaður.
Vanti menn varahlut í bílinn sinn, þurfa þeir að greiða allan þennan kostnað að fullu. Bílaverkstæðin geta nefnilega ekki niðurgreitt varahlutina með neinu öðru en launalækkun bifvélavirkjanna.
13.9.2012 | 17:19
Vírus eða vökvi
Hvað gerist ef einkennalaus Ebola sýktur einstaklingur sest upp í flugvél, breiðþotu, með hundruðum meðfarþega hvaðanæva að úr heiminum sem stefna á skiptiflug í allar áttir? Nú eða einhver sýktur Marburg vírusnum?
Á flugvöllum heimsins er leitað að mögulega hættulegum vopnum, allt frá skotvopnum og hnífum til rakspíra, linsuvökva og vatnsflaska í farteski flugfarþega. Enginn leitar að stórhættulegum vírusum. Ennþá!
31 látist vegna ebola-veirunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2012 | 18:43
Viðskiptasnilld!
Ætti ég hatt, tæki ég hann ofan, a.m.k. tvisvar, fyrir norðmönnum.
Beiti ESB þessari reglugerð, þá hefur helsta keppinauti norskra á fiskmörkuðum í Evrópu verið rutt úr vegi.
Hitt er svo annað mál, að íslenskir fiskútflytjendur þurfa nú að setjast niður og finna nýja markaði. Varla vilja þeir láta reka sig til baka frá evrópskum höfnum með skipin sín full af fiski?
Samþykkja beitingu refsiaðgerða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.9.2012 | 20:18
Íslenskt lambakjöt aðeins fyrir sælkera
Fréttablaðið var með athyglisverða frétt þann 7.september síðastliðinn sem virðist ekki hafa vakið þá athygli sem hún verðskuldar.
Fyrirsögnin er "Erlendir sælkerar vilja íslenska lambið". Undirfyrirsögnin er "Nýsjálenskt lambakjöt flutt til landsins í fyrsta sinn til að mæta skorti".
Það er þekkt að sumir íslendingar vilja helst fá erlent kjöt á sinn disk og bera því við að það sé svo miklu ódýrara. Magnið fremur en gæðin eru þeirra ær og kýr.
Fyrst um sinn mun hið nýsjálenska lambakjöt verða selt innanlands á sama verði og íslenskt, svo nú mun reyna á bragðlauka innflutningssinna.
Merkilegt líka að innflytjandinn (Íslenskar matvörur ehf) ætlar, að sögn, að "byrja með dýrari vöðva". Einmitt þá sem eftirsóttastir eru af íslenska lambakjötinu erlendis.
Spyrja má: Hvort er ódýrara fyrir okkur að nýta eigin framleiðslu heima fyrir eða skipta henni út fyrir þá sem þarf að flytja dýrum dómum yfir hálfan hnöttinn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.9.2012 kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
25.8.2012 | 13:02
Er velferð afstæð?
Eru breytingar á stjórnarskránni dæmi um aukna velferð?
Falla biluð og/eða samantjösluð lækningatæki, sem geta bjargað mannslífum, ekki undir velferð?
Þeir eru fleiri en "smaladrengirnir" sem efast um velferðarskilning forsætisráðherrans.
Vörn velferðar stærsti sigurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.8.2012 | 17:02
Lánveitingar ekki gjöf!
Því má ekki gleyma að nú þegar hafa íslendingar greitt verulegar fjárhæðir vegna þessara lána; bæði afborgun af höfuðstól og vexti.
Því má heldur ekki gleyma að Ísland hækkaði framlag sitt til AGS - sem aðildarþjóð að AGS, og hugsanlega í þakklætisskyni frekar en að þess hafi verið krafist.
Hef ekki tiltækar tölur vegna ofangreinds en áreiðanlega eru margir fróðir fúsir til þess að bæta úr því.
Landið er hins vegar hvorki aðili að evru né björgunarsjóði evrunnar.
Ísland fékk 700 milljarða króna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.8.2012 | 16:21
Röng mynd?
Kortið sem fylgir fréttinni sýnir jarðskjálftaupptökin í NA Tyrklandi. Borgin Tabriz er í Íran - miðja vegu á milli vesturlandamæranna og Kaspíahafs - í beinni línu austur af stóra vatninu Urmia.
Eftirskjálftarnir eru ekkert smáræði; fyrir utan þessa tvo stærstu hafa komið sex stórir eftirskjálftar, sá síðasti uppá 5 stig fyrir u.þ.b. hálftíma.
Ringulreið í kjölfar skjálfta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2012 | 17:30
Huglausir kettir - kokhraustir fuglar
Alltaf kemur eitthvað á óvart - jafnvel séð úr sólstól á svölunum í rólegheitum í blíðunni.
Fyrir um það bil klukkutíma, sá ég utan að mér að stór svartur fugl lenti mjúklega í runna- og trjáþykkni nágrannans - til hægri. Guli nágrannakötturinn úr næstu götu var búinn að hreiðra um sig í óslegnu kafgrasi nágrannans - til vinstri.
Svarti fuglinn vakti líka athygli gula kisans, sem hoppaði strax inn i minn garð að girðingunni og hafði engu minni áhuga á fuglinum en ég sjálf. Gulur vokaði þar og vappaði lengi vel, en hvergi sást í fuglinn. En hann var þar þó greinilega enn.
Gulur stóðst svo ekki mátið og fann sér girðingarstaur til þess að hoppa yfir í garðinn til hægri þar sem fuglinn hafði lent og laumaði sér inn í runnaþykknið. Sjálf var ég minna forvitin og einbeitti mér að sól og bók.
Viti menn, nokkrum mínútum seinna heyri ég hávaðagarg, "CAWW..." og lít upp í tíma til þess að sjá tvo ketti fljúga yfir nágrannagirðinguna; á undan fór einn bröndóttur og á eftir sá guli! Ekki orðum aukið að ég hafi séð undir átta mislitar loppur á flótta eins og eldibrandur garð úr garði í vinstri-átt.
Eftir að kettirnir höfðu verið reknir á flótta, sá ég svo fuglana. Svartir og greinilega "fjölskylda" með ungum. En stærsti fuglinn var óvenjulega stór; stærri en svartþröstur og mun minni en hrafn.
Mér datt í hug kráka - en getur það verið?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.8.2012 kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.7.2012 | 17:58
Raunir garðræktandans
Fólk er hvatt til þess að nýta garðinn sinn og rækta þar grænmeti allrahanda. Mjög jákvætt og ekki aðeins fyrir útiveruna heldur líka stoltið að uppskera eftir fyrirhöfninni.
Garðræktandinn ákvað því að gera skurk í því snemma s.l. vor þar sem aðstæður leyfðu í garðinum. Keypti verktakaþjónustu til þess að fjarlægja gamlan og úldinn jarðveg í skiptum fyrir fyrsta flokks. Megnið af plássinu var reyndar ætlað undir kartöflur, en afgangurinn fyrir gómsætt grænmeti.
En þeim tilkostnaði var kastað á glæ. Áður en nokkru varð potað niður í nýja jarðveginn voru nágrannakettirnir búnir að merkja svæðið sem sitt einkaklósett.
Þar með aflagði garðræktandinn allar áætlanir um grænmetisrækt, en af þrjóskunni einni saman setti hann að lokum niður þau kíló af kartöfluútsæði sem höfðu beðið nægrar spírunar.
Nágrannakettirnir eru enn að leggja til áburð, þrátt fyrir grænu kartöflugrösin. Brjóta bara niður grösin ef þau eru fyrir "hægindunum".
Afar ólystilegt! Hver vill rækta grænmetið sitt í kattakassanum? Kattaeigendur?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.7.2012 kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)