Get fallist á rök Dögunar - en

... drengirnir koma frá Finnlandi þar sem þeir höfðu leitað hælis og eru taldir eldri en þeir segja sjálfir.

Drengina hefði mátt dæma í skilorðsbundið fangelsi hér fyrir fölsun (þeir eru að öllum líkindum sakhæfir) og senda síðan beinustu leið aftur til Finnlands - þar sem þeirra mál eru til meðferðar.


mbl.is Mótmæla dómi héraðsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reynslan af þessu fólki, vegabréfslausum ( hvernig sem þeir nú komast á milli landa ?) eða með fölsuð vegabréf, á öðrum norðurlöndum, er í einu orði sagt hrikaleg. Þeir ljúga bara ekki um sinn aldur og þjóðerni, heldur um alla sína tilvist.

Að komast inn á vestrænt velmegunarkerfi og þá helst til æviloka er þeirra markmið. Ekki gleyma, að síðan kemur fjölskyldu innflutningurinn (slektinvandringen) og þá breytist einn í hundrað og allir fara á sósialinn.

Að sjálfsögðu er þetta vesældómur, heimska og skammsýni stjórnmálamanna um að kenna.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.5.2012 kl. 16:38

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

V.J. stundum vaknar spurningin um til hvers Ísland sé eiginlega aðili að Schengen.

Hingað slæðist aldrei hræða sem hefur áhuga á því að komast til Evrópu. Hins vegar sitjum við uppi með og stoppum af alls kyns lið með fölsuð vegabréf sem kemur frá Evrópu og vill til Kanada.

Mér hefur skilist að Schengen samningurinn sé til verndar Evrópu en e.t.v. þurfum við að leggja það samkomulag af og semja við Kanada varðandi þeirra landamæragæslu?

Kolbrún Hilmars, 9.5.2012 kl. 17:38

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er ekkert sannað að þeir séu eldri en þeir segjast vera. Það er bara skoðun lögreglustjórans á Suðurnesjum og yfirvalda í Finnlandi. Þú lætur sem það sé bara eins og hver önnur staðreynd að þeir séu eldri en þeir segjast vera. Dómurinn dæmir þá aftur á móti eins og þeir séu jafn gamlir og þeir segjast vera og lét ekki uppi neinn vafa. UNICEF var að gefa út tilkynningu um það m.a. að vafi um aldur eigi alltaf að túlka flóttamönnum í hag. En hér taldi dómstóllinn engan vafa um aldur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 10.5.2012 kl. 11:05

4 identicon

Með röntgen á úlnlið er hægt að sjá aldur viðkomandi.

Norðmenn hika ekki við að beita þessari aðferð, þegar svona lið kemur til landsinis.

Spurningin er- Hvers vegna fóru þeir ekki til Svíþjóðar, þar sem tekið er á móti þeim sem guðs gjöf, nema þeir hafi ætlað til Kanada, þar sem ættinjarnir eru?

En, auðvitað á að senda þá til baka, ekki núna , heldur NÚNA!

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.5.2012 kl. 11:33

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurður, sannað er að drengirnir beittu fölsunum til þess að flýja meðferð mála sinna í Finnlandi. Ég efast um að þar beiti menn nokkru meira harðræði gagnvart hælisleitendum en hér.

Þeim fjölgar alltaf sem gripnir eru í Leifsstöð með falsaða pappíra á leið til Kanada. Það má því alveg eins spyrja hvort það sé ekki bara mannúðlegast að "yfirsjást" fölsunin og hleypa þeim öllum vestur yfir?

Kolbrún Hilmars, 10.5.2012 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband