24.3.2012 | 15:45
Enn einn betlistafurinn í Austurveg
Ætli Monti búist við því að ná meiri árangri en forystusauðir ESB fyrir stuttu síðan? Að vísu er Monti aðeins að selja Ítalíu - ekki apparatið allt.
Eitt er víst. Stáss-stofur G-20 ríkjanna þar eystra safna ekki ryki þessa dagana.
Reynir að selja Ítalíu til Asíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2012 | 15:41
Sæbrautin er ónýt
Tek undir með Elínu. Svo virtist sem Sæbrautin gæti orðið afkastamikil akbraut og tekið álagið af "hinni" leiðinni. En Sæbrautin var eyðilögð með tilkomu Hörpu.
Þar er nú á kafla hámarkshraði 30 km, gangbrautarhækkanir og umferðarljós við umferðarljós. Þungaflutningar, sem áður fóru þar um, fara nú um Hringbraut. Eins og við íbúar hér við Hringbraut erum sífellt minntir á; húsin okkar hreinlega hristast þegar ferlíkin aka hjá.
Hringbrautin er fjölmenn íbúagata; allt frá sjó í vestri að Hljómskálagarði í austri. Svo ekki sé nú minnst á gangandi vegfarendur og þær þúsundir sem eiga erindi um og yfir götuna við Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn og Þjóðarbókhlöðu.
Ferjuflutningar á sjó milli bæjarhverfa ættu ekki að vera nauðsynlegir. Líklega nefnir Elín þennan kost til þess að benda á hvað vegatengingin við Vesturbæinn er orðin fáránleg.
Ekki batnar ástandið svo þegar hin fyrirhugaða Landsspítalabygging verður reist.
Elín Pálmadóttir: Bílferju þörf úr Vesturbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.3.2012 | 15:34
Hvar er skjaldborgin?
Ég var að lesa yfir síðasta fréttabréf CreditInfo/Lánstrausts - þ.á.m. eftirfarandi upplýsingar:
"Fjöldi einstaklinga í alvarlegum vanskilum hefur [..] haldið áfram að aukast jafnt og þétt frá því á fyrsta ársfjórðungi 2008 og hefur aldrei verið meiri en nú.
26.369 einstaklingar voru í alvarlegum vanskilum þann 1. febrúar síðastliðinn eða að meðaltali 8,7% fjárráða einstaklinga." (leturbreyting er mín)
Jafnframt segir að staðan sé hvað verst hjá einstæðum foreldrum og einhleypum körlum. Eða einmitt þar sem fyrirvinna heimilisins er aðeins ein.
Ekki verða þessar tölur skýrðar með atvinnuleysi, því af +12.000 atvinnulausum eru margir einstaklingar í sambúð.
Væri ekki ráð að virkja þessa margumtöluðu og lofuðu "skjaldborg" um heimilin áður en allt þetta fólk ásamt börnum sínum lendir á götunni?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2012 | 17:36
Enn einn Íslandsvinurinn tjáir sig
Megi Yannakoudakis og skoðanasystkini lengi lifa - eða a.m.k. nógu lengi til þess að hindra ESB aðild Íslands.
Greiðsla Icesave forsenda ESB-aðildar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.3.2012 | 18:34
Fyrir hvern var Schengen?
Það er vitað að ESB löndin í suðri og suðaustri sitja uppi með tug - ef ekki - hundruðir þúsunda flóttamanna/hælisleitenda frá N-Afríku og Mið-Austurlöndum.
Ítalir voru sniðugir og gáfu einfaldlega út ferðaleyfi til nyrðri landanna þegar sem hæst stóð, og franskir mótmæltu hástöfum á sínum tíma. Ætli grískir hafi ekki lengur efni á því að girða af og hirða um flóttafólkið og leyfi þeim að fara vestur á bóginn sem vilja?
Auðvitað vilja svo allir komast til Parísar! Sem Schengen verndar greinilega ekki lengur.
Hótar að draga Frakkland úr Schengen | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2012 | 18:43
Spurningar vakna
Sérstaklega þessar tvær:
Er hægt að upplýsa kortahafa um hvernig svona aukabúnaður lítur út í hraðbönkum?
og
Vanrækja hraðbankaeigendur að fylgjast með hraðbönkunum sínum?
Handteknir vegna kortafölsunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.3.2012 | 17:04
Trúboðahvötin söm við sig
Með fullri virðingu fyrir þessum tveimur tannlæknanemum, sem eru líklega um það bil 20% af þeim dýrustu sérfræðingum sem útskrifast hérlendis á þessu ári. Á kostnað íslenskra skattgreiðenda sem gerir þó varla meira en að fullnægja þörf og stéttarendurnýjun hér innanlands. Fyrir 300 þúsund manna samfélag.
Í Tanzaníu búa 43 milljónir manna.
Þær verða örþreyttar þessar elskur þegar þær koma heim aftur.
Tannlæknanemar til Tansaníu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.3.2012 | 15:27
Nú kveinka sér margir!
Senn verða allir raftar velferðarstjórnarinnar á sjó dregnir og dubbaðir upp í forsetaframboð.
En þeir eru þó fleiri sem fagna ákvörðun Ólafs. Þetta er góður dagur.
Ólafur Ragnar gefur kost á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.2.2012 | 15:23
Þögn sama og samþykki?
Greiði fólk þessa útsendu greiðsluseðla, sem eru gerðir samkvæmt fyrri endurreikningsformúlunni með röngum höfuðstól, ætli það teljist jafngilda samþykki fyrir reikningsaðferðinni?
Senda út greiðsluseðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2012 | 18:04
Haltu mér - slepptu mér
Takist landbúnaðarráðherranum að pota þjóðinni í ESB þá þurfum við engan landbúnað, því þá fáum við allan ódýra matinn frá ESB. Eins og lofað er.
En svona til öryggis, ef landbúnaðarráðherrann fær ekki að ráða, þá þarf þjóðin að framleiða matinn sinn sjálf líkt og hún hefur gert frá landnámi. Vissara að gera ráð fyrir því.
Það hlýtur að þurfa sérstaka hæfileika að geta talað tungum tveim til lengri tíma.
Bjartsýnn á framtíð landbúnaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |