31.7.2013 | 18:36
Af hverju Snowdenar þrífast!
Einmitt núna vantar mig einn slíkan.
Eins og þeir vita sem hafa lesið bloggið mitt var bíllinn minn, ásamt bíl nágranna míns, klessukeyrður hér á bílastæðum við heimili okkar. Þetta gerðist fyrir 11 dögum. Lögreglan var kölluð til af sjónarvottum. Elskulegt fólk þar á ferð sem að auki biðu á vettvangi og fóru ekki fyrr en eftir að hafa gefið skýrslu. Þeim verður ekki nógsamlega þakkað.
Í gær fékk ég staðfestingu á því að lögregluskýrslan hefði loksins borist viðkomandi tryggingafélögum. En þegar ég bað um að fá að sjá skýrsluna, var því hafnað "vegna viðkvæmra persónuupplýsinga sem þar koma fram".
Ég meina; þarf einföld tjónaskýrsla lögreglunnar; þ.e. hver keyrði á hvern og hver er ábyrgur, að innihalda "viðkvæmar persónuupplýsingar"? Af hverju þurfa tryggingafélögin síðan að fá þær upplýsingar - en ekki tjónþolar?
Er hér um að ræða huglægar ástæður í þágu tjónvalds sem eru andstæðar hagsmunum tjónaþola?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
29.7.2013 | 19:31
Boðar vonandi gott?
Það er nefnilega mikill munur á því hvort erlendir menn eða ríki megi kaupa hér fasteignir eða land.
![]() |
Endurskoðar lög um fasteignakaup |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.7.2013 | 14:06
Bakari fyrir smið - eða
gæti ekki verið að hvalirnir forðist einfaldlega vélahávaða ALLRA skipa?
Ekkert leiðir hávaða betur en vatn, svo dýrin hafa nægan tíma til þess að forða sér frá skipsskrúfunum. Það hljóta þau að hafa lært fyrir löngu síðan.
![]() |
Mikil fækkun hvala í hverri skoðunarferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.7.2013 | 17:55
Stofufangelsi
er refsing bíleigandans sem lendir í því að bíll hans er ekinn í klessu á bílastæði við heimili hans á meðan bíleigandinn er grandalaus að sinna húsverkum innandyra.
Þrátt fyrir skyldutryggingar, kaskótryggingar og what-not virðist enginn ábyrgur. Enginn greiðir vinnutap vegna snúninga við óumbeðin og óvelkomin formsatriði. Enginn bætir fyrirhugað og ónýtt sumarfrí bíleigandans. Innanlands...
Því meira bítur refsingin sem fjárráðin eru minni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
18.7.2013 | 16:11
Skemmtileg tilbreyting
![]() |
Rauðbirkinn Sigmundur Davíð heillar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2013 | 15:38
Tvíræð samhæfing
Hvernig gengur það upp að "allir landsmenn greiði sama iðgjald" ef iðgjaldið verður 15,5% af launum en ekki föst krónutala?
Og hvernig geta lífeyrisgreiðslur til launþega orðið "jafnar" þegar einn hefur greitt 15,5% af 200 þúsund króna launum en annar 15,5% af 700 þúsund króna launum?
Er þetta eitthvað Hróa-Hattar dæmi?
![]() |
Við erum nálægt samkomulagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
11.7.2013 | 22:11
Þegar einar dyr lokast - opnast oft aðrar
Af hverju að flytja hvalkjötið til Japan þar sem það er - að sögn - unnið í gæludýrafóður, ef hægt er að framleiða úr því gæludýrafóður hérlendis?
Síðan má flytja það út í neytendapakkningum fyrir gæludýrin. Varla amast grænfriðungar við því að gæludýr heimsins fái eðalfæðu í dallinn sinn?
![]() |
Sýnist að þessu sé sjálfhætt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2013 | 15:44
Enginn getur séð allt fyrir
- en sem venjulegur borgari í landi, sem er ekki einu sinni aðili að ESB, hef ég einmitt komið mér upp 2ja ára birgðum af hinum forboðnu glóperum sambandsins.
Þetta með sígaretturnar - ja, skyldi þó ekki vera skynsamlegt að hamstra þær líka...
![]() |
Geymir 38.000 sígarettur á heimili sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.7.2013 | 15:50
Íslenskur ríkisborgari - og hvað svo?
Ætti að senda Snowden til Vestmannaeyja í fiskvinnslu eða stofna íslenska leyniþjónustu og skipa hann sem framkvæmdastjóra?
Annars er einfalt að leysa núverandi pattstöðu með því að senda Birgittu ásamt presti á Moskvuflugvöll. Gefa þar parið saman og allt fellur í ljúfa löð...
![]() |
Snowden verði íslenskur ríkisborgari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2013 | 14:28
Ekki undarlegt
"að ökumaður fólksbílsins hafi látið ófriðlega og neitað að koma út úr bíl sínum"
eins og fyrri fréttin greindi frá.
![]() |
Undir áhrifum og olli árekstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |