Sorgarstundir á aðventu

"Sjaldan er ein báran stök" eins og máltækið segir.

Í dag var jarðsungin elskuleg föðursystir mín, Ásta K. Jónsdóttir frá Borgarfirði eystra og s.l. laugardag náfrændi minn og æskufélagi, Helgi M. Arngrímsson, sem einnig var frá Borgarfirði eystra. 
Því miður gátum við tvö elstu systkinin úr okkar hópi af heilsufarsástæðum ekki kvatt þau á viðeigandi hátt með nærveru okkar við útfarirnar.

Þeirra beggja verður sárt saknað af okkur frændum hér á suðurhorninu en stærst er sorgin hjá þeirra allra nánustu, sem við systkinin bæði sendum hér með ítrekaðar samúðarkveðjur.

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 1.12.2008 kl. 17:41

2 identicon

Innilegar samúðarkveðjur Kolla mín

(IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 19:40

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hjartans þakkir til ykkar beggja, Sigrún og Silla. 

Kolbrún Hilmars, 1.12.2008 kl. 20:17

4 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Elsku Kolla, ég votta þér innilega samúð mína.

Greta Björg Úlfsdóttir, 3.12.2008 kl. 20:57

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Innilegar þakkir til ykkar Sigrún og Greta   

Kolbrún Hilmars, 5.12.2008 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband