Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.8.2018 | 18:27
Enn ein skelfilega fréttin
Það líður nú orðið varla svo vika að ferðamenn láti ekki lífið eða stórslasist einhvers staðar á landinu á þjóðvegum okkar og vegaslóðum, á fjöllum eða í fjörum. Hvað er að? Vantar upplýsingar frá bílaleigum og ferðasöluaðilum um frumstæðar aðstæður hvarvetna á landinu? Hverjum stendur næst að ráða bót á þessu ófremdarástandi? Eitthvað þarf að gera í þessum málum og ekki seinna en í gær.
Banaslys í Steinsholtsá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.8.2018 | 16:56
Marktæk könnun?
Svarendur voru 768; 545 voru hlynntir lokunum - hinir 223 væntanlega á móti eða hlutlausir. Hefði ég undirrituð verið spurð hefði ég verið hlutlaus - enda þó nokkur ár síðan ég hef haft eitthvað að sækja í miðborgina. Er þó í göngufæri.
Gladdist þó af nýlegum fréttum um að póstútibúið mitt verður flutt á "melana" í haust - svolítið þreytandi að þurfa alltaf að hringja og biðja um framsendingu á aðgengilegri móttökustað. Reyndar mun ástæðan fyrir þessum flutningi póstsins vera slæmt aðgengi...
Tvöfalt fleiri vilja göngugötur árið um kring | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2018 | 23:31
Söguleg skilaboð
Góða fólkið fær gluggasæti en vonda fólkið fer í "lestina", alveg eins og í skipaferðunum forðum. Þar fékk ríka fólkið (góða fólkið) far á 1sta farrými, en pöpullinn (vonda fólkið)á 3ja farrými. En vissulega voru allir farþegarnir á sömu bestu leiðinni.
Gagnrýnir ný skilaboð Strætó bs. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2018 | 18:30
Myndin af drónanum er góð
Hlýtur að vera einfalt mál fyrir lögreglu að finna eigandann - með aðstoð söluumboðsins.
Dróninn lét sig bara hverfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.8.2018 | 14:18
Hvaða vitleysa...
auðvitað ógna svona þjófar lífi og heilsu fólks. Þeir sem lenda í þessari "óskemmtilegu reynslu" líður illa, finnur fyrir óöryggi heima hjá sér, missir svefn og með því heilsu og vellíðan. Gæti þannig jafnvel stytt líf þeirra.
Óboðinn gestur í íbúðarhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.8.2018 | 19:24
Hver eru númerin sem skilin voru eftir?
Gæti verið að einhver kannaðist við þau líka - sem auðveldaði eftirleitina.
Stálu bílnúmerum fyrrverandi ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.8.2018 | 15:48
Engin vinnuskylda á frídegi verslunarmanna
en margir kjósa frekar launin með 80% álagi en frí. Auk þess nýtur sumarfólkið góðs af. Margar aðrar starfsstéttir fá frí þennan dag, líkt og á frídegi verkamanna 1.maí.
Gefi starfsfólki frí á frídegi verslunarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.7.2018 | 13:44
Er Svíþjóð aðili að NATÓ?
"Friðarsambandinu" NATÓ er eflaust ljúft að veita aðstoð í neyð - og ekkert við það að athuga. En óneitanlega er þetta enn ein ástæðan til þess að efast um hlutverk sambandins, sem hefur í einhverjum tilvikum gerst "árásarsamband" - utan eigin ætlaðs varnarsvæðis.
Svíar fá aðstoð frá NATÓ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.7.2018 | 17:19
Í alvöru?
Trúir því einhver að rússneskir auðkýfingar hætti við veiðiferð til Íslands vegna þess að bandarískur forseti hafi hækkað innflutningstolla á stál frá ESB?
Rússar afbóka 100 milljóna kr. ferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |