Lánveitingar ekki gjöf!

Því má ekki gleyma að nú þegar hafa íslendingar greitt verulegar fjárhæðir vegna þessara lána; bæði afborgun af höfuðstól og vexti.

Því má heldur ekki gleyma að Ísland hækkaði framlag sitt til AGS - sem aðildarþjóð að AGS, og hugsanlega í þakklætisskyni frekar en að þess hafi verið krafist.

Hef ekki tiltækar tölur vegna ofangreinds en áreiðanlega eru margir fróðir fúsir til þess að bæta úr því.

Landið er hins vegar hvorki aðili að evru né björgunarsjóði evrunnar.


mbl.is Ísland fékk 700 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Staðreyndin er að við hefðum komið betur útúr hruninu ef við hefðum verið í ESB.

þannig að það er augljóst hvað almenningur mun kjósa þegar samningurinn liggur fyrir.

Sleggjan og Hvellurinn, 12.8.2012 kl. 21:17

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Satt segir þú Kolbrún.  Ég er farin að halda að öll skilningarvit ESB sinna séu lokuð og læst.  Hvað gerist hjá þeim þegar VG þorir ekki lengur að fylgja Samfylkingunni lengra út í kosningar með þetta óvinsæla mál bundið um hálsinn?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.8.2012 kl. 01:12

3 Smámynd: GunniS

mér sýnist af að glugga í tölur yfir áætlaðan fjölda vinnuafls á íslandi, að það eigi að láta um 160.000 manns sjá um að borga þessar 700 milljarða, en það er áætlaður fjöldi sem er á vinnumarkaði á íslandi. 

maður veltir því fyrir sér hvort alþingi geri sér grein fyrir þessu, hvað er eru mikið ör ríki. en ég efast oft um að margir yfirleitt leiði hugann að þessu. og á meðan erum við með opin landamærinn fyrir vinnuafli frá evrópu. 

GunniS, 13.8.2012 kl. 02:01

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Tvíeyki, það er nú spurning um hvort við hefðum yfirhöfuð lent í þessu hruni ef við hefðum ekki búið við regluverk ESB í gegnum EES samninginn.

Ásthildur, ekki treysti ég mér til þess að sálgreina ESB sinna - hvað þá að spá fyrir uppá hverju þeir taka næst... :)

GunniS segir réttilega að ESB sinnar kunni ekki að telja. Það mætti halda að þeir ruglist á samlagningu og margföldun og komist að þeirri niðurstöðu að íslendingar séu a.m.k. 10 milljónir. Og hver og einn einasti þeirra í fullu og hálaunuðu starfi.

Kolbrún Hilmars, 13.8.2012 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband