Tímabært að í einhverju hrikti

Það þarf að endurskoða öll lagaleg samskipti launþega og vinnuveitenda frá síðustu öld. 
Launþegar hafa að vísu fengið ákveðið frelsi, þ.e. félagafrelsi og að standa utan stéttarfélaga, nú hlýtur röðin að vera komin að vinnuveitendum.


mbl.is Hriktir í stoðum íslensks vinnumarkaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Ítrekað hefur verið nefnt að við mótefnamælingar komi í ljós gömul smit og að viðkomandi sé með mótefni. 
Þýðir það að þótt "viðkomandi" sé sjálfur öruggur geti hann heldur ekki smitað aðra?


mbl.is Sex smit — fimm bíða eftir mótefnamælingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðið uppá nýja afsökun?

Það er skylda að hafa ökuskírteinið við hendina undir stýri.  En þegar það er komið í símann - og síminn dauður - hvað þá?


mbl.is Ísland.is fór á hliðina vegna álags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur verri villa er í setningunni

"Hafðu bar kóðann tilbúinn" væri nær því farþeginn getur ekki "gert" barkóða/strikamerki.


mbl.is „Gerðu bar kóðann tilbúinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki að endurskoða þetta með borgarlínu

þegar allt unga, bíllausa fólkið er komið á þessar "skútur"? Fjölskyldufólkið ferðast auðvitað ekki á þennan hátt eða með borgarlínunni hvort sem er.


mbl.is Bjarni: Rafmagnshlaupahjól ótrúlega mikil breyting
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki uppörvandi

hvað varðar skimun ferðamanna ef hún er ómarktæk fyrstu dagana eftir smit. 


mbl.is Greindust fyrst smitlausir en svo smitaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegt svar dómsmálaráðherra

Veit hún ekki, eins og Inga Sæland; að þetta "lið" var ekki að ferðast innan Schengen?
Ísland, útvörður Schengen, hleypti þeim inná svæðið. 
Ef nokkur ástæða er til þess að endurskoða aðild Íslands að Schengen þá er það ekki síst sú að Íslandi er greinilega ekki treystandi fyrir hlutverkinu.


mbl.is Vill opinbera rannsókn á máli Rúmenanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta brandari?

Smituðu þjófagengi er hleypt inní lokað land vegna sóttvarna, fá svo að leika lausum hala og dreifa smiti að geðþótta!  Ja, hérna.


mbl.is Fjórtán lögreglumenn í sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er aldrei sagt HVAR þessi smit eru greinast núna?

Jafnvel það gæti hjálpað eins og eitthvert síma-smitrakningarapp.


mbl.is Eitt nýtt smit greindist hjá ÍE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með það?

Er ætlast til þess að heilbrigðisstarfsmenn gefi vinnu sína - eða að skattgreiðendur niðurgreiði gjaldið? Síðan hvenær er það frágangssök að ferðamenn greiði sjálfir það sem ferðalagið þeirra kostar?


mbl.is Afbókanir þegar byrjaðar að streyma inn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband