Ísland í dag!

Vinkona mín skrifaði á fésbókarsíðu sína í morgun:

"Það var brotist inn hjá mér í nótt.  Ég spurði þjófinn að hverju hann væri að leita og hann svaraði "víni og peningum".  Svo við fórum bæði að leita..."

Takk fyrir raunsannan brandara,  Hrönn Wink


Mismælin eru stórslys

því skilaboðin sem sænski kóngurinn vildi koma á framfæri munu hverfa í gagnrýninni á útreikninginn - ekki staðreyndina.


mbl.is Svíakóngur reiknaði vitlaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvískinnungur þingmanna ríður ekki við einteyming

Alþingi hefur sett þau lög að staðgöngumæðrun sé ólögleg. Samt samþykkti Alþingi - í flýti - að veita barni íslenskan ríkisborgararétt sem vegna laganna er fætt af erlendri staðgöngumóður, þar sem staðgöngumæðrun er lögleg.

Vita þingmenn Alþingis hvort þeir eru að koma eða fara?

Að þessu sögðu óska ég hinum nýbökuðu foreldrum til hamingju með soninn!


mbl.is Enn vegabréfslaus á Indlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert

Hafa Skotar ekkert við það að athuga að utan-ESB-ríkið Noregur deili með þeim makrílkvótanum?

Auðvitað vantar alveg allar kvótatölur í þessa frétt, þ.e. hver fær hverju úthlutað úr hvaða heildarkvóta. En það breytir þó ekki þeirri staðreynd að makríllinn er svo aðgangsharður á Íslandsmiðum að hann svo gott sem hoppar upp í fjörusteina.

Svo hirðir hvalurinn sitt - það mætti kannski bjóða Skotum hvalveiðikvóta í sárabætur?


mbl.is Skosk stjórnvöld krefjast aðgerða gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fór það!

Írar samþykktu Lissabon sáttmálann í 2. umferð eftir að þeim voru gefnar tvær undanþágur frá sáttmálanum.  Önnur var undanþága fyrir herþátttöku írskra þegna í ESB hernum - hin að þeir fengju að halda fóstureyðingalöggjöf sinni. 

Nú þegar hefur Mannréttindadómstóllinn dæmt af írskum aðra undanþáguna.

Það hefur oft verið bent á það að varlega skyldi treysta undanþágum viðvíkjandi ESB aðildarskilmálum í viðræðum íslenskra við apparatið.   Þetta mál bendir til þess að hinir sömu hafi eitthvað til síns máls.  

 


mbl.is Bann við fóstureyðingum dæmt ólöglegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfnum Icesave 3!

Samninganefndin síðasta hefur skilað af sér.  Þá er líka fullreynt að lengra verður ekki komist með pólitískri samningaviðleitni.   Og þar með viðleitni íslensku ríkisstjórnarinnar til þess að semja um að skuldaábyrgð á fjármálasvikum einkaaðila verði velt á íslenskan almúga - sem almenningur mun aldrei samþykkja.

Vissulega er útgáfa 3 verulega betrumbætt frá hinni "glæsilegu" útgáfu, sérstaklega vaxtaþátturinn,  en dugir ekki til.  Óvissuþættirnir eru of margir til þess að við getum leyft okkur að samþykkja hana.  Ég fylgdist með beinni útsendingu þegar samninganefndin skilaði áliti sínu og það sem stakk mig mest var að í hinu greinargóða yfirliti sem Buchheit gaf um forsendur og framkvæmd, var að í nær hverri setningu setti hann fram EF.  Ef þetta þá verður ef hitt.   Á öllum þessum "efum" var samningurinn byggður.  Sem er gjörsamlega ófullnægjandi hvað viðskiptasjónarmið varðar, en gæti þóknast pólitískum.

Þó er óþarfi að agnúast út í samninganefndina sjálfa; hennar hlutverk var að sinna þessari pólitísku samningatilraun og hún skilaði því með sóma.  

 


Skemmdarverk?

Salmonellusmit á íslenskum kjúklingabúum eru orðin 50 á þessu ári.   Sem voru nær óþekkt fyrirbæri fyrir aðeins 3 árum.  Enda er eftirlit með matvælaframleiðslu hér á landi með því strangasta sem gerist.

Er einhver hagsmunaaðili vísvitandi að brjóta niður íslenska framleiðslu til þess að greiða fyrir innflutningi frá  erlendum kjúklingaverksmiðjum?

 


Enn flækjast málin!

Samkvæmt þessari Droops-aðferð þýðir að greidd atkvæði - alls 80.000 um 25 sæti -  að allir hafi kosið  sömu röðun í sætin 25, sem gerir 3200 atkvæði í hvert sæti.  Sem er hið besta mál ef kosningin er rússnesk.

Auðvitað er svolítið seint að spyrja núna; EN:

Hvaða reglur áttu eiginlega að gilda um þetta fyrsta almenna persónukjör í sögu lýðveldisins?

 

 


mbl.is Stjórnlagaþing til Hæstaréttar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf engan Icesavesamning

annan en að kvitta undir afsal erlendra eigna einkabankans Landsbanka til breskra og hollenskra.

Íslenskum skattgreiðendum kemur málið ekki við.


mbl.is Engin drög verið kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagarnir Skattmann og Jón Jónsson í slæmum málum?

Nú er ljóst að Jón Jónsson má ekki hafa það sem hobbý að smíða sér kerru í bílskúrnum sínum án þess að reikna sér af því vinnutekjur og greiða af viðvikinu viðeigandi skatta.  Svo segir Skattmann.

En hvað með "ókeypis" vinnukraftinn sem Jón Jónsson heldur inni í íbúðarhúsinu sínu áratugum saman  og kallast eiginkona?   fær engin vinnulaun sem eru uppgefin til Skattmanns en er þó alltaf sístarfandi í þágu Jóns og skerðir sölumöguleika skattskyldra þjónustuaðila á vegum Skattmanns.   

bakar, eldar, þrífur, saumar, sér um innkaup og er oft í hlutverki fjármálastjóra.  Ef aðstæður krefjast annast líka barnauppeldi, fræðslumiðlun, sjúkrahjálp á fyrstu stigum - og skipar jafnvel Jóni fyrir.   Svo ekki sé nú minnst á þá þjónustu sem hvorki má nefna né kaupa. 

Verði komið í veg fyrir slík skattaundanskot;  hvor mun þá fyrr lenda í vandræðum; Skattmann eða Jón Jónsson?

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband