Þetta var tiltölulega friðsamur og þögull febrúardagur.

Forsætisráðherrann er i fjölskyldufríi í Sviss, eða svo er sagt, og gerir ekkert af sér á meðan.  Fjármálaráðherrann er bara kátur, búinn að ráða amerískan ráðgjafa í Icesave málið, hefði svo sannarlega getað gert ýmislegt verra af sér.

Norskur vítisengill var sendur til síns heima - enda eru norskir ekki í ESB.  Verst að ekki var leigð breiðþota og hinir EES afbrotaenglarnir sendir með í sömu ferð.  En það má auðvitað ekki, ESB vill ekki fá þá aftur.  Svo höfum við nú Ramos á okkar framfæri - en það er nú reyndar ekki vegna þess að hans heimaland vilji ekki taka við honum - það erum við sem viljum ekki missa Ramos.

Svo eru fjármálakrimmarnir okkar að fá allt upp í hendurnar aftur í boði Arion!  Bíð spennt eftir að Bjöggarnir fái Landsbankann afhentan aftur - en auðvitað aðeins eftir að Icesave hefur verið kippt frá og afhent almúganum!

Jamm, eða eins og konan sagði; þegar börnin gráta veit maður að þau eru í lagi - það er þögnin sem maður hræðist...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þögnin er ærandi sumstaðar. En ég bíð frétta????

(IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 22:38

2 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Við þurfum að fara að taka til okkar ráða.

Sjá bloggið mitt: http://isleifur.blog.is/blog/isleifur/entry/1017013

ÁFRAM ÍSLAND, EKKERT Icesave, Við segjum NEI !

Ísleifur Gíslason, 11.2.2010 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband