19.1.2012 | 14:32
Vonandi misskilið stöðugleikamarkmið líka
Eða felst stöðugleikinn í því að aðeins 165.100 manns af 319.600 íbúum landsins eigi að vera starfandi til frambúðar? Varla getur það talist metnaðarfullt markmið.
Fróðlegt væri að sjá hvernig ellismelladæmið lítur út í Þýskalandi, þar sem menn óttast einmitt öldrun þjóðarinnar vegna þess að æ færri verði til þess að halda þjóðfélaginu gangandi. Erum við nú þegar komin á þetta stig sem þjóðverjar óttast - þrátt fyrir tiltölulega "unga" þjóð?
Hvað varðar slagorðið "að koma hjólum atvinnulífsins af stað", þá er það merkingarlaust þegar hjólin vantar.
|
„Misskildasta ríkisstjórn sögunnar“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
16.1.2012 | 17:07
Þegar snjóa leysir kemur ýmislegt í ljós - misskemmtilegt
Góðu fréttirnar fyrst: Blómakassinn minn á útidyratröppunum hefur verið hulinn snjó síðan í nóvember. Þar trónar nú ein (uppfyllingar) stjúpa sem er svo græn og sprelllifandi að ef vel viðrar gæti hún jafnvel tekið upp á því að blómstra eftir viku.
Slæmu fréttirnar eru svo þær að margir kvarta undan hundaskít út um allt! Þó ráðlegg ég fólki að skoða afurðina aðeins betur áður en það dæmir þvi það er oft erfitt að greina gæsaskít frá hundaskít.
Og gæsirnar hafa einmitt verið svolítið aðgangsharðar á hunda- og mannaslóðum í fannferginu síðustu vikurnar.
14.1.2012 | 19:22
Skrýtið reikningsdæmi
Ef að meðaltali fóru 548 bílar hvern sólarhring á síðasta ári um göngin, þá er útreikningurinn einfaldur; 548 bílar x 365 sólarhringar = 200.020 bílar.
Samt segir í fréttinni að bílarnir hafi verið "nærri" 400.000. Ekki batnar dæmið þegar fullyrt er að heil milljón manns hafi verið um borð í bílunum.
Það segir að í hverjum bíl (miðað við 200.020 bíla) og í hverri ferð bílsins hafi verið að jafnaði 5 farþegar. Afar ótrúverðug ágiskun - svona miðað við reynsluna annars staðar.
|
Hálf milljón um Héðinsfjarðargöng |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
11.1.2012 | 18:18
Brjóstapúðamál
eru efst á baugi þessa dagana. Sýnist sitt hverjum um hvort ríkissjóður eigi að kosta fjarlægingu þeirra gölluðu. Sumir virðast ganga út frá því að stór hluti púðanna hafi verið settir upp eftir brjóstakrabbamein og/eða að sjúkratryggingar nái yfir alla púðana.
Nú hef ég engar tölulegar upplýsingar um hvernig þessar "púðaaðgerðir" eru tilkomnar; af nauðsyn eða fagurfræði. En þar sem mér er málið svolítið skylt þá þætti mér fróðlegt að sjá raunverulegar tölur í því efni.
Miðað við það sem ég þó veit um brjóstaaðgerðir vegna krabbameins þá eru flestar þær konur sem ég þekki sem hafa valið brjóstauppbyggingu úr eigin líkamsvefjum. Hinar eru fleiri sem hafa valið að fá sílikonpúða í brjóstahaldarann. Ég er ein af þeim, en af áratugs reynslu myndi ég aldrei gangast undir aðgerð til þess að setja púðann undir húðina. Það þarf nefnilega að skipta um þessa "utanborðspúða" í brjóstahaldarann á eins eða tveggja ára fresti.
9.1.2012 | 18:16
Forsjárhyggjan í algleymi
en mörgum finnst auðvitað ósköp notalegt að bera ekki ábyrgð á eigin málum.
Stjórnvöld eiga það svo líka skilið að til þeirra séu gerðar kröfur um að stýra einkaneyslunni þegar þau hafa sjálf gefið kost á sér í þeim efnum. Samanber sykurskattinn.
Hvað verður það næst; skyndibitaskattur? Eða opinber matseðill vikunnar sem fjölskyldum verður skylt að hlíta, að viðlögðum sektum?
Var annars ekki frétt dagsins að hinir íslensku undirheimar kepptust við að vopnavæðast? Finnst fólki nauðsynlegra að stjórnvöld sinni frekar holdafari almennings en háttalagi undirheimaliðsins?
|
Aðgerða er þörf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
6.1.2012 | 14:22
Einhliða bann-viðræður?
|
Svartfugl friðaður í ESB |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.12.2011 | 17:28
Nauðungarflutningar
Nú hefur mér verið tilkynnt af Póstinum að búið sé að flytja mig úr R-107 í R-101.
Enginn kostur gefinn á andmælum.
Ég sé því mína sæng útbreidda; eftirleiðis tilheyri ég þessu margumtalaða kaffi-rjóma-lepjandi miðbæjarliði. 
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.12.2011 | 18:16
Snjór og meiri snjór
og sér ekki fyrir endann á samkvæmt veðurspánni.
Hvað varð um hina hnattrænu hlýnun, sem er talin svo alvarleg að hún er orðin féþúfa stjórnvalda hérlendis og í ESB?
Eða er almættið aðeins að uppfylla óskir þeirra sem þola ekki jól nema þau séu hvít? Ég segi nú bara eins og maðurinn forðum; hafðu vara á óskum þínum - þær gætu ræst.
Það er alla vega aðeins sanngjarnt að fá afslátt á kolefnisgjaldinu. Eða fá fyrir það aðstoð við snjómoksturinn. Er búin að moka útitröppurnar tvisvar í dag með sama árangri og Bakkabræðra þegar þeir báru sólina inn í húfunum.
Svo hafa snjóruðningstæki á götu og gangstétt myndað samsæri um að fela litla sparneytna bílinn minn í snjóskafli. Sennilega þarf ég að huga að því að fjárfesta í öflugum jeppa.
Ætli það fáist harðbýlisstyrkur út á jeppakaupin þegar hnatthlýnunin hefur klikkað?
19.12.2011 | 19:58
Engan þarf að undra þessa neitun
Sautján evruríki ætla að leggja í púkkið það sem svarar að meðaltali 8.8 milljarða punda á hvert þeirra. En Bretland; ekki-evru-ríki, á að punga út með 25 milljarða punda!
Eru menn með öllum mjalla þarna á meginlandinu?
|
Bretar loka á AGS |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.12.2011 | 18:41
Franskir eru ekki að gera ESB neinn greiða
með því að espa Frjálslynda breska ESB sinnaða flokkinn upp á móti sér.
Það er ekki ofsögum sagt af vandræðagangi ESB apparatsins þessa dagana.
|
Bretar svara Frökkum fullum hálsi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



Samtök Fullveldissinna
Heimssýn
Þjóðarheiður
Auðun Gíslason
Axel Jóhann Hallgrímsson
Axel Þór Kolbeinsson
Baldur Hermannsson
Berglind Nanna Ólínudóttir
Bergljót Gunnarsdóttir
Bjarni Harðarson
Björn Birgisson
Björn Emilsson
Daníel Sigurður Eðvaldsson
Emil Örn Kristjánsson
Erla Magna Alexandersdóttir
Erla J. Steingrímsdóttir
Greta Björg Úlfsdóttir
Guðbjörn Jónsson
Guðmundur Ásgeirsson
Guðmundur Jónas Kristjánsson
Guðni Karl Harðarson
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
Guðrún Sæmundsdóttir
Gunnar Heiðarsson
Halla Rut
Hannes
Haraldur Hansson
Haraldur Haraldsson
Heimir L Fjeldsted
Helga Guðrún Eiríksdóttir
Helga Kristjánsdóttir
Helgi Þór Gunnarsson
Hildur Sif Thorarensen
hilmar jónsson
Hjörtur J. Guðmundsson
Hrannar Baldursson
Riddarinn
Högni Jóhann Sigurjónsson
Jón Valur Jensson
Jón Óskarsson
Jón Snæbjörnsson
Jón Svavarsson
Jón Vilhjálmsson
Kolbrún Stefánsdóttir
Kristján Jón Blöndal
Kristján P. Gudmundsson
Loftur Altice Þorsteinsson
Magnús Sigurðsson
Ómar Bjarki Smárason
Óskar Helgi Helgason
Páll Blöndal
Páll Vilhjálmsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Ragnar L Benediktsson
Ragnar Þór Ingólfsson
Ragnhildur Kolka
Rannveig H
Sigrún Jónsdóttir
Sigurbjörn Svavarsson
Sigurður Sigurðsson
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir
Skattborgari
Sólveig Þóra Jónsdóttir
Steingrímur Helgason
Svanur Gísli Þorkelsson
Vala Andrésdóttir Withrow
Þórarinn Þ Gíslason
Vefritid
Samstaða þjóðar
Vinstrivaktin gegn ESB




