Er viðeigandi að kalla opinbera starfsmenn skítapakk?

Hvað finnst ykkur hinum þarna úti?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Mér finnst það ekki viðeigandi að kalla einhvern skítapakk sama um hvern er að ræða, opinberan starfsmann eða ekki. Sumir kunna bara ekki mannasiði.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 23.9.2008 kl. 18:27

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Missti af þessu - hver kallaði hvern skítapakk?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.9.2008 kl. 19:59

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Helga mín, ég lagði höfuð mitt á höggstokkinn - og storkaði eðalbloggara - guess who?    Fylgistu ekki með blogginu, kona góð?

Kolbrún Hilmars, 23.9.2008 kl. 20:15

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ó, silly me! Þessi "eðalbloggari" og hirðin hennar gerðu það að verkum að einn af mínum uppáhaldsbloggurum, Hallgerður Pétursdóttir (austangola), fékk loksins nóg af eineltinu í þeim og lokaði blogginu sínu í dag. Ef einhver er skítapakk þá eru það þær. Ég get ekki fyrirgefið þeim hvernig þær fóru með hana og hennar skemmtilega bloggsvæði. Ég vona að þær lesi þetta og skammist sín!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.9.2008 kl. 20:31

5 Smámynd: Skattborgari

Ef það er einhver starfstétt sem verðskuldar að vera kölluð þessu orði þá eru það þingmenn.

Kveðja Skattborgari hinn ljóti.

Skattborgari, 23.9.2008 kl. 20:33

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það lesa auðvitað ekki margir bloggið mitt svo það er ekki von til þess að verðugir mæti hér til þess að skammast sín. 

En leitt að heyra þetta með Hallgerði, hún var ekki bloggvinkona en ég las oft bloggin hennar og ég hvet hana til þess að mæta aftur og láta hart mæta hörðu.  Ef allir gefast upp þá situr Moggabloggið bara uppi með ótölulega mörg   við öllu dónalegu orðbragði og rolluhjörð sem er alltaf sammála.  Lífið er bara ekki þannig

Svo er þetta auðvitað hárrétt hjá þér, Skattborgari, það er lítið gagn í því að skamma ræstingarfólkið (opinbera starfsmenn)  þegar stjórnendur (þingmenn) eru þeir sem eiga að bera ábyrgðina, bæði á sjálfum sér og undirmönnum sínum.  

Svei attan bara - ástandið er mun verra en ég hélt.

Kolbrún Hilmars, 23.9.2008 kl. 20:51

7 identicon

 Þú átt væntanleg við að lögreglustjórinn hafi verið kallaður skítapakk .............Segi það enn og aftur, Margur heldur mig sig.  Þið vitið að það er svo auðvelt að taka feil er það ekki. 

(IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:15

8 identicon

 Ferlegt með Austangolu, mér fannst svo notalegur blærinn frá henni 

(IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 21:16

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Já, hún var með allra skemmtilegustu bloggurunum. En nú kætast þær sjálfsagt, þarna í "guðhvaðþúertsniðugelskan!"- kórnum. Þeim tókst ætlunarverk sitt.

Silla mín, það er sko rétt hjá þér.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.9.2008 kl. 21:30

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurlaug, þú veist greinilega um hvað málið snýst   

Það er missir að Austangolunni, hún var alltaf málefnaleg, skemmtileg og prúð, ég vona svo sannarlega að sumir skammist sín - helst lengi-lengi! 

Kolbrún Hilmars, 23.9.2008 kl. 21:31

11 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Svakalegt þegar fyrir kemur að það eru ekki allir sammála. Sjáið nú þetta:

"Hænan:Mér finnst þú ekki beinlínis vera búin að skoða málið frá annarri hlið en þinni eigin.  Frekar þröngur hjá þér sjóndeildarhringurinn."

Ég hló þar til ég ældi!

Svo talar "þetta fólk" um hroka í öðrum.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.9.2008 kl. 21:54

12 Smámynd: Skattborgari

Það sem ég hef oft tekið eftir er að þeir sem eru að berjast gegn ákveðnu eins og fórdómum eru oft á tíðum þeir fordómafylstu einstaklingar sem fyrirfinnast. Þetta á oft við aðila sem eru að berjast fyrir víðsýni en sýna alltaf hvað þeir eru sjálvir þröngsýnir.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 23.9.2008 kl. 21:59

13 identicon

Það er eitt það versta sem ég hef lent í að þurfa að viðurkenna upphátt þegar ég hef rangt fyrir mér og verða rökþrota, það er  helvíti sárt, en ég hef gert það. 

En ég veit að það er ekki á allra færi að sýna slíka skynsemi, við verðum að skilja það og viðra.

(IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 22:08

14 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurlaug, það er mannlegt að hafa rangt fyrir sér, en það er stórmannlegt að viðurkenna það    

Kolbrún Hilmars, 23.9.2008 kl. 22:27

15 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Síðasta færsla Hallgerðar fjallaði einmitt um einelti. Þessi kvennahópur þykist náttúrlega rosalega á móti einelti og bóna á sér kolsvarta geislabaugana á þegar það ber á góma. En þetta sama lið fer svo fremst í flokki að leggja aðra í einelti þegar eitthvað kemur fram sem þær eru ekki algerlega sammála og sáttar við. Þá hóa þær innbyrðis hvor í aðra og mæta með þvílíka drullu, yfirgang og hroka að ég hef hreinlega aldrei orðið vitni að ljótara einelti!

Ég hef algera og fullkomna skömm á svona löguðu. Þetta er hreint fyrirlitleg framkoma!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 24.9.2008 kl. 11:44

16 Smámynd: Berglind Nanna Ólínudóttir

Djí... ég er ALLTAF AÐ MISSA AF ÖLLU!!!!! Kolla mín, hverri varstu eiginlega að storka???? Hvað er í gangi eiginlega? Og til að svara spurningunni: Já, ef fólk er ekki að vinna vinnuna sína, en er á launum hjá mér og öllum öðrum, þá hikstalaust kalla ég það skítapakk, og bendi því á að enginn hafi neytt það í vinnu hjá hinu opinbera, fyrir ALMENNING sjáðu!!!! 

Ég sé það hinsvegar hér, að ég er alls ekki inn í þessu bloggdæmi hérna, verð að fara að taka mig á í því sko! Enda sjálfsagt að nýta allan þennan frítíma sem er skyndilega að detta upp í hendurnar á mér! Eyddi til dæmis gærdeginum í að blogga um tvær fréttir, og skellti svo einni íslenskri raunveruleikasögu inn, og ég hélt nú hreinlega að heimsóknakerfið myndi hrynja. Vildi óska að fólk væri svona líflegt í umræðunni hjá mér eins og hjá þér! Og var einmitt að tjá mig um opinbera starfsmenn aka skítapakk í einni af þessum færslum!

En kom nú bara til að kvitta og skila knúsi sko!

Berglind Nanna Ólínudóttir, 26.9.2008 kl. 05:40

17 Smámynd: Kolbrún Hilmars

  þú ert miklu prúðari, Berglind mín, og kallar "pakk" bara þá sem eru EKKI að vinna vinnuna sína - "skítapakkið" fékk uppnefnið fyrir hið gagnstæða...

Kolbrún Hilmars, 26.9.2008 kl. 13:57

18 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Nákvæmlega.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.9.2008 kl. 17:09

19 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Já, það er vandlifað 

Kolbrún Hilmars, 26.9.2008 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband