Pirraður miðborgarstjóri

Nú er hann pirraður útí nagladekkin.  Þó má leiða rök að því að margt nagladekkjafólk er ekki vísvitandi að hrekkja borgarstjórann, heldur þurfa margir að sækja borgina heim sem hafa þó sýnt þá kurteisi að taka snjókeðjurnar undan bílunum fyrir utan borgarmörkin.

En það eru svosem ekki bara nagladekkin sem pirra borgarstjórann.  Á síðasta ári voru einhverjar aspir í miðborginni að pirra hann.  Þessi tré lét borgarstjórinn fjarlægja.  Eftirmálalaust.  Nú í vor hafa aspir og fleiri ofvaxin tré pirrað íbúa í úthverfum - og mega líklega sæta málshöfðun fyrir að krukka við þeim.

Það er slæmt að eiga borgarstjóra sem er aðeins pirraður staðbundið - í R-101.

 


mbl.is Nagladekk pirra borgarstjórann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Virðist svo illkynjað því glóran fær ekki varist, datt í þessa færslu læt hana flakka.

Helga Kristjánsdóttir, 12.5.2013 kl. 01:04

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Við lifum a tímum sértækrar pirrunna. Það sem stundum er kallað séra Jóns heilkennið.

Ragnhildur Kolka, 12.5.2013 kl. 10:57

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þetta hlýtur að vera sértæk pirrun.  Var sjálf flutt hreppaflutningum í fyrra, frá R-107 til R-101.  Sennilega vegna þess að ég nota mjólk út í kaffið mitt...

Er alltaf að bíða eftir því að verða meira pirruð en ég var í mínu gamla póstnúmeri en þetta er greinilega ekki smitandi því enn finn ég engan mun 

Kolbrún Hilmars, 12.5.2013 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband