Ætti að banna trúarbrögð?

Landinn er almennt hlynntur trúfrelsi en undanfarna mánuði hefur myndast hér nýr þrasmálaflokkur, trúarbrögð, til viðbótar hefðbundnu dægurþrasi sem tæpast var á bætandi.  Auk þess er hér um að ræða eldfimasta deiluefni allra tíma, sem einn framsýnasti maður íslandssögunnar, Ljósvetningagoðinn, áttaði sig á.

Það þekkja flestir trúarbragðavígvöll sögunnar; ofsóknir og ódæðisverk eins trúarhóps gegn öðrum gegnum aldirnar sem í dag eru heiftúðug sem aldrei fyrr.  Er ekki kominn tími til þess að stöðva blóðbaðið? 

Þar sem ég er fylgjandi jafnræði þykir mér réttast að banna öll trúarbrögð  og er friðarins vegna reiðubúin að fórna mínum líkt og Ljósvetningagoði gerði forðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Eigum við þá ekki að banna stjórnmálastefnur líka og stefnur sem byggja á trúleysi? Þær eru ófáar.

Hver er annars þessi trúarbragðavígvöllur sögunnar?

Er það innrásin í Írak sem er orðin að trúarstyrjöld en ekki efnahagsleg ráðstöfun vesturveldanna?  

Er það fyrri heimstyrjöldin, eða seinni heimstyrjöldin?

Er það 30.000.000 manna útrýmingarherferð Stalíns eða 6.000.000 manna blóðbað Pol Pots í Kambódíu.

Eða kannski þær tugir milljóna sem byltingar Maos Tse Tung sendu í dauðan í Kína.

Eða eru það kannski stríðin í Afríku á síðustu áratugum sem kynt var undir af kalda stríðinu og nýlendustefnu vesturlanda.

Eða kannski við fetum okkur aftur á bak, Afganstríðin, Krímstríðið, borgarstyrjaldirnar í Ameríku eða Napóleon styrjaldirnar.  

Hver af þessum stærstu og mannskæðustu stríðum mankynsins voru trúarstríð?

Svanur Gísli Þorkelsson, 23.9.2008 kl. 02:32

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Svona í flýti munað:  Ofsóknir gegn kristnum í Róm, Krossferðirnar, Rannsóknarrétturinn, Galdraofsóknirnar, Kaþólskir~mótmælendur á Írlandi, Ofsóknir gegn Baháíum (víða), Hryðjuverk öfgahópa múslima-  sem dæmi.

Það hafa farið mörg mannslífin og mikið blóð runnið.

Kolbrún Hilmars, 23.9.2008 kl. 09:53

3 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Kæra Kolbrún.

Ég er ekki að neita að slæm verk hafa verið gerð í nafni trúarbragða. En þessi mantra um að allt illt komi frá túrarbrögðum er dálítið þreytt. Það sem fólk segir um blóðböðin sem þau valda er úr öllu hlutfalli við aðrar ástæður sem fólk finnur sér til að murka lífið úr hvert öðru.

Það sem þú telur upp eru þekktar ávirðingar á hendur trúarbrögðum en þær hverfa eins og dropi í hafið miðað við þau fallvötn af blóði sem græðgi og baráttan fyrir landaeign hefur orsakað.

Svanur Gísli Þorkelsson, 23.9.2008 kl. 12:28

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæll aftur Svanur.  Það fer fjarri því að ég hafi gleymt mestu fjöldamorðingjum sögunnar, svo sem Stalin, Maó, Pol Pot, Hitler.  En fyrrnefndu þrír útrýmdu fyrst og fremst "þegnum" sínum, einhvers konar trú hefur greinilega verið ofar í huga þessarra kóna en landvinningar - amk er kommúnisminn oft flokkaður undir trúarbrögð. 

Mér skilst að helsta hugsjón Hitlers hafi verið að útrýma gyðingum  hvar í landi sem til þeirra næðist og stofna gyðinglaust þriðja ríkið.  Þannig má eflaust einnig flokka hans atferli undir trúarbragðastríð.

Kolbrún Hilmars, 23.9.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband