Bankaviðskipti aðeins möguleg með milligöngu 3ja aðila

Hef undanfarið agnúast út í væntanlegar breytingar á samskiptum viðskiptavina við bankann sinn frá og með næstu áramótum.  Hef þó hingað til fagnað öllum tæknibreytingum sem hafa auðveldað samskiptin við viðskiptabankann.   En nú þykir mér of langt gengið.  
Væntanlegar og einhliða tilkynntar breytingar vegna "tæknibyltingar" heimta milligöngu aðila  "úti-í bæ".  Ef ekki símafyrirtækja með GSM skilríkjum þá með enn flóknari tölvubúnaði dótturfyrirtækis bankanna.
Hvar er bankamálaráðherra, neytendasamtökin - nú, eða bara almenningur?




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Þetta er alveg stórmerkilegt, Auðkennislyklar eru skotheld vörn en Farsímar eru hackers playground.

Hrossabrestur, 14.11.2016 kl. 18:48

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Einmitt Hrossabrestur, og farsímum er stolið í tugatali á hverjum degi, eða þeir týnast, eða batterín deyja, eða þeir eru "utan þjónustusvæðis".  Heimskulegasta öryggisvörn sem hægt er að finna.  Og þetta ætlar bankinn sem geymir peningana okkar, vinnulaunin okkar, að bjóða okkur uppá!

Kolbrún Hilmars, 14.11.2016 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband