Haustlaukar

Það er alltaf viðeigandi að blogga um eitthvað skemmtilegt á sunnudegi.  Sérstaklega eftir öll leiðindi hversdaga undanfarinnar viku.

En ég gaf mér semsagt loksins tíma til þess að fjárfesta í augnayndi næsta vors; hundrað haustlaukum í öllum regnbogans litum.  Ég á að vísu eftir að pota þeim niður í moldina - en hálfnað er verkið þá hafið er.

Ekki skemmir svo veðurspá næstu viku fyrir; einhver sólarglæta alla daga og hitinn 10-12 stig.  Það eina sem ég hef áhyggjur af er að haustlaukarnir misskilji aðstæðurnar og gerist jólalaukar.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

setti niður fyrir 10 dögum - ekki 100 þó kanski helming - nú bíður maður eftir vorinu

Jón Snæbjörnsson, 5.10.2010 kl. 14:30

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Takk fyrir Jón, já nú bíðum við eftir vorinu - eða jólunum

Er nú búin að setja niður rúmlega helming, restin fer niður einhvern næstu daga...

Kolbrún Hilmars, 5.10.2010 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband