Þau tíðkast nú breiðu spjótin!

Af tærum kvikindisskap birti ég hér skoðanaskipti mín við ESB og Icesavesinna. 

Upphafið var athugasemd hans á ónefndu bloggi sem kom málefnalegri umræðu ekki við og féll klárlega undir persónuleg meiðyrði.  Þó vil ég ekki endurtaka þann sóðaskap hér og birti því aðeins eftirmálann:

"Þegar rökin þrýtur verður sumum það á að grípa til mykjudreifarans.  Í því tilfelli er alltaf skynsamlegt að kanna fyrst vindáttina svo mykjan slettist ekki í öfuga átt við það sem ætlað var...Kolbrún Hilmars, 6.7.2009 kl. 20:33

Mikið er nú gott að Kolbrún Hilmars skuli njóta þess svona vel að standa undir bununni á mykjudreifaranum hjá Davíð Oddssyni og Agnesi Bragadóttur. Sennilega er kerlingarkálfurinn ,,nári" þegar allt kemur til alls.

Jóhannes Ragnarsson, 6.7.2009 kl. 21:06 "

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Mér hefur alltaf fundist þessi Jóhannes Ragnarsson frekar ógeðfelldur hvað málfar varðar. Það eru ótrúlega margir orðljótir hér á moggablogginu  stunda persónuníð og komast upp með það. Kannski af því að enginn kvartar. En þessir aðilar eru ljótir blettir á blogginu.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 7.7.2009 kl. 19:30

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæl Sólveig, ég þekki ekkert til Jóhannesar en þarna blöskraði mér.  Hann réðist að tveimur bloggurum sem honum var greinilega í nöp við en höfðu ekkert að gera með umræðuna, sem snerist um Davíð og moggagreinina.  

Að sjálfsögðu fékk ég líka mína slettu fyrir slettirekuskapinn - og er stolt af    

Kolbrún Hilmars, 7.7.2009 kl. 20:01

3 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ég hef verið blessunarlega laus við hann á minni síðu en hef séð komment hans annarsstaðar. Skrítið að enginn hafi kært hann. Þú hefur líka alveg efni á því að vera stolt Kolbrún.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 7.7.2009 kl. 20:08

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hahaha, mér er farið að líða eins og Mata Hari - hér kemur nýtt innlegg af sömu slóðum - stuðningur við Jóhannesarslettuna:

"Þú mátt ekki gleyma þeim sem eru "sárar". "Sári/a" er t.d. í tilfelli Kolbrúnar Hilmarsdóttur sem hefur greinilega verið í gegnum árin mikil Davíðs-kona og í dag er hún sár kerlingargreyið.

Ágúst Valves Jóhannesson, 7.7.2009 kl. 20:57"

Jamm, ég er greinilega komin í pólitík    

Kolbrún Hilmars, 7.7.2009 kl. 21:15

5 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Ég skal segja þér það Kolbrún að Jóhannes, Ágúst Valves, Sveinn hinn ungi sem btw er ekkert svo ungur og Þór Jóhansson (bókmenntafræðingur? eilífðarstúdent með meiru, einn sá orðljótasti hér á blogginu) eru allir af sama meiði. Fifl. Ég er ekki vön að vera orðljót um fólk en þetta er staðreynd.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 7.7.2009 kl. 21:28

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sólveig, þessir herramenn mega fjasa um mig eins og þeir vilja.  Ég er hvort sem er komin í ævilanga iðrun og yfirbót eftir að hafa alltaf stutt Sollu og kvennalistann hennar og því er mér þetta rétt mátulegt - þannig lagað séð!   Annars er mér bara skemmt   

Kolbrún Hilmars, 7.7.2009 kl. 21:35

7 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Alltaf gott að hafa húmor ég tala nú ekki um fyrir sjálfum sér.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 7.7.2009 kl. 21:39

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Takk Sólveig, þú ert sannur vinur.

Kolbrún Hilmars, 7.7.2009 kl. 21:55

9 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Alltaf bætist eitthvað skemmtilegt í sarpinn:  Orðrétt úr nýjasta innleggi Ágústs; "Orðið "kerling" er staðsetning konu í samfélaginu"   Þá vitum við kerlingar það og getum haskað okkur í hornið okkar 

Nema maðurinn hafi átt við konur almennt? 

Kolbrún Hilmars, 8.7.2009 kl. 15:59

10 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Sá það og kommentaði líka. Sorglegur gaur.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 8.7.2009 kl. 19:46

11 Smámynd: Kolbrún Hilmars

   "Gaurinn" endar svo einhvern tíma á elliheimilinu innan um allar þessar langlífu kerlingar - ææ...

Kolbrún Hilmars, 9.7.2009 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband