Drómi Samfylkingar?

Það er Jónsmessa, sólin skín í heiði, himininn er blár og landinn ætti að gleðjast.

En það ríkir svartnætti á  alþingi, Icesave skal samþykkja með góðu eða illu á næstu dögum.  Forsætisráðherrann skartar enn þrítugri munnvikaniðurbeygjunni og utanríkisráðherrann með prakkarabrosið í ESB áróðursferð í útlöndum og sóar sjarmanum þar ytra.

Auðvitað eru þjóðmálin erfið, en fyrr má nú rota en dauðrota! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð byrjun á bók

(IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 22:10

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ja, ég var svona aðeins að velta fyrir mér öllu þessu svartnætti sem fylgir SF.  Næsta bók mun bera titilinn  "Voru VG líka í stjórn?"

Kolbrún Hilmars, 24.6.2009 kl. 22:25

3 identicon

Hvernig væri að skreppa í helgarferð austur á land, það spáir 20 stiga hita um helgina???  Þú gætir samið titil næstu bókar hér hjá mér

(IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 22:35

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Takk fyrir gott boð, hver veit nema ég slái til - enda sé ég strax fyrir mér bókartitilinn: "Leitin að VG".   

Kolbrún Hilmars, 24.6.2009 kl. 22:50

5 identicon

Og hvar er betra en að byrja í þeirra stærsta kjördæmi, ég er með auka rúm

(IP-tala skráð) 24.6.2009 kl. 22:57

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þessu Kolbrún/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 26.6.2009 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband