Athyglisvert!

Hafa heil 80% landsmanna svo góða þekkingu á viðskiptalífinu að þeir geti dæmt um hvort það sé spillt eða ekki?


mbl.is Margir telja spillingu ríkja í þjóðfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

þarf sérstaka þekkinug ? dugar kanski  ekki minna en feit háskólagráða til að teljast gildur í að greina á milli hvað sé rétt eða ekki rétt ?

Jón Snæbjörnsson, 1.5.2009 kl. 21:33

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Góð spurning, Kolbrún. Það er sífellt verið að gera kannanir sem fólk hefur engar forsendur til að taka afstöðu til. Umræðan í þjóðfélaginu og fordómar ræður í mörgum tilvikum afstöðu fólks.

Í þessari könnun var t.d. spurt um traust til dómstóla og borið saman við könnun frá fyrir tveimur árum. Jú, fólk ber meira traust til dómstóla nú en þá, Hvað hefur breyst hjá dómstólum? Engir nýir dómarar hafa verið skipaðir frá því nýja stjórnin tók við. Sérstakur saksóknari hefur tekið til starfa, enn liggur ekkert fyrir um árangur hans í starfi (þótt auðvita voni maður hið besta). Eva Joly náði að gera sig vanhæfa áður en gegnið var frá tugmilljóna króna samningi við hana.

Útkoman virðist því vera að fólk trúir því sem það vill trúa. Segir það okkur eitthvað um heiðarleika í viðskiptum? 

Ragnhildur Kolka, 1.5.2009 kl. 22:42

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Óttalegt blaður hér að ofan um eitthvert meint vanhæfi frú Joly, í besta falli misskilningur á því hlutverki sem hún var ráðin til.

Það mætti alveg eins snúa spurningu síðuritara við, hví 20% landsmanna ættu á móti að vera dómbærir á litla sem enga spillingu í viðskiptalífinu?

Magnús Geir Guðmundsson, 2.5.2009 kl. 03:16

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Magnús Geir; spurningu Kolbrúnar er aktúal. Hún vekur upp efasemdir um gildi  spurning eins og þeirra sem Gallup setti þarna fram. Niðurstaða könnunarinnar segir okkur ekkert um hvernig viðskiptalífið höndlar sín mál. Aðeins hvaða tilfinningar fólk ber til þess. 

Yfirlýsingar Joly um sekt manna, sem rannsókn saksóknara beinist að, takmarka verulega aðkomu hennar að málinu. Í lýðræðisríkjum er það grundvallaratriði að menn séu saklausir uns sekt er sönnuð. Allt sem hún lét sér um munn fara í Silfrinu, getur orðið vatn á myllu verjenda útrásarvíkinga, þ.e. ef mál þeirra koma einhvern tíma fyrir dóm.

Ragnhildur Kolka, 2.5.2009 kl. 09:07

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þakka ykkur öllum fyrir innlitið.  Ekki síst þér, Ragnhildur, sem skildir hvað ég var að fara. 

Magnús, þar sem þú nefnir hin 20% sem töldu viðskiptalífið ekki spillt, þá tel ég að það hafi einmitt verið sá hlutinn sem skildi spurninguna rétt og hafi haft næga þekkingu á viðskiptalífinu til þess að svara neitandi.  

Hin spilltu fyrirtæki útrásar og græðgisvæðingar eru - voru!! -  sem betur fer aðeins lítill hluti viðskiptalífsins og hugsanlega voru mistök í þessari könnun að gera ekki greinarmun á þeim og viðskiptalífinu í heild sinni.

Kolbrún Hilmars, 2.5.2009 kl. 13:01

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ágæta Kolbrún!

Þetta er já bara skoðun sem þú setur fram, en er án neins röstuðnings eða gagna.Hvorki ég né´þú getum alhæft nokkuð um þann hóp sem lenti í þessari könnun og tók afstöðu, hversu mikla eða litla þekkingu hann hefur á viðskiptalífinu. Hér var heldur ekkert verið að kanna sérþekkingu folksins, heldur var um svokallaða viðhorskönnun að ræða.

Ykkur er auðvitað frjálst sem öllum öðrum að draga allar kannanir í efa og gildi þeirra til eða frá, staðreyndin hins vegar sú að þær hafa um langa hríð þótt nauðsynlegt tæki í uplýsingaskyni á fjölmörgum sviðum.En sannleikan eina, til eða frá, bera þær að sjálfsögðu ekki með sér né hið eina rétta svar!

Aftur verð ég að segja, að Ragnhildur líkt og fleiri er með furðulega tortryggni í garð frú Joly, sem á sér litla eða enga stoð. Konunni er ekki ætlað að stunda einhverjar þriðja gráðu rannsóknir á bankahruninu eða einstaklingum sem kunna að tengjast því. hún var af fenginni reynslu að tjá sig um hvernig hún teldi landið liggja og alveg ómögulegt að skilja hvernig það gerir hana vanhæfa um að veita ráðgjöf og hjálp við rannsóknina eins og talað hefur verið um.

Þessi afstaða finnst mér byggjast frekar á pólitískri andstöðu frekar en málefnalegum rökum.

Magnús Geir Guðmundsson, 2.5.2009 kl. 20:43

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæll aftur Magnús.  Skoðanakannanir Gallups eru ekki gerðar bara til þess að stytta starfsfólki þeirra stundir.  Kannanirnar eru gagngert til þess að afla upplýsinga og þeir geirar sem niðurstöðurnar varða munu nýta sér þær. Til þess er nú leikurinn gerður.   

Kolbrún Hilmars, 3.5.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband