11.1.2018 | 16:08
Um hvernig loftlagsbreytingar var spurt?
Fólk virðist hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum en það fylgir ekki sögunni hverjar þær séu taldar verða. Er það svo sjálfgefið að um hlýnun sé að ræða að ekki þurfi að nefna þá nauðsynlegu forsendu? Hvað með að hægt hafi verið að skíða á sandöldunum í Sahara nú nýlega? Hvað með spá okkar virtasta veðurfræðings sem telur að nú stefni í nýja ísöld á norðurslóðum, þótt hann geti auðvitað ekki séð fyrir hvort hún verði "lítil" eða "stór".
Auðvitað hef ég sjálf áhyggjur af loftslagsbreytingum en greinilega beinast þær í öndverða átt við áhyggjur hinna 75% landa minna. Það er að segja, hafi viðkomandi raunverulega áhyggjur af hlýnun en ekki kólnun.
Hafa áhyggjur af loftslagsbreytingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.