Hvað með súrefnisgrímurnar?

Þeim er ætlað að detta sjálfkrafa niður ef loftþrýstingurinn fellur niður fyrir hættumörk.

Á ekki að vera jafnsjálfsagt mál að húrra þeim niður, handvirkt ef þarf,  ef farþegunum liggur við köfnun af reykjarstybbu?


mbl.is Skildi ekki hvers vegna ekki mátti opna glugga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha hann er nákvæmlega jafn heimskur og hann lítur út fyrir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2012 kl. 16:20

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Víst er það þakkarvert að maðurinn sé forsetaframbjóðandi en ekki flugvélahönnuður. 

Kolbrún Hilmars, 25.9.2012 kl. 16:44

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2012 kl. 16:47

4 Smámynd: Hörður Einarsson

Eins og þessi sem datt af greininni.

Hörður Einarsson, 25.9.2012 kl. 20:55

5 identicon

Í þessu tilviki gera súrefnisgrímur í farþegarými ekkert gagn. Þarna var um reyk að ræða, en grímur í farþegarými blanda loftið og ef um eld er að ræða, eru verri en engar. Um súrefni flugmanna er annað að ræða en það er hreint og beint úr kút, ekki OXY generator. Það eina sem er hægt að gera er að reykræsta. Ummæli Romneys eru jafn heimskuleg samt vegna þrýstingsmunar....á haus hans og nánasta umhverfi.

Sigurður Arnarson (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 11:29

6 identicon

Falla ekki grímurnar niður þegar þrýstingur fellur, og súrefnið byrjar að streyma eftir að togað er í grímuna (það ræsir framleiðsluna)?????
Eins og ég sé þetta hefði etv manual losun á grímunum hjálpað. Tímabundið losað farþega við að anda að sér reyknum.

Svo spyr maður sig að því hvort að systemið sé nánast eins í öllum vélum.

Jón Logi (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 13:14

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hefði viljað sjá framan í Romney ef hann hefði opnað glugga svona í hvað 3000 feta hæð eða hvað sem flugvélarnar fljúga nú.  Hehe ætli hann hefði ekki bara frosið með brosið?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.9.2012 kl. 13:22

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurður, það var eiginlega það sem ég hélt; að þetta hefði verið reykur en ekki eldur.  Ekki það að í farþegarýminu sjálfu er nægt súrefni til þess að eldur geti logað glatt en svo eru líka slökkvitæki um borð.

Jón Logi,  einmitt.  Lítið gagn í að spara súrefnið eldhættunnar vegna ef farþegarnir kafna úr reykeitrun í staðinn.

Ásthildur, 33000 feta hæð er það oftast.   Manstu eftir breiðþotunni sem sprakk í frumeindir stuttu eftir flugtak frá París eftir að hleðsludyr opnuðust?  Fyrst héldu menn að um hryðjuverk væri að ræða - enda vélin enn ekki komin í fulla flughæð.

Ég hefði líklega átt að vara flughrædda við að lesa þennan pistil og athugasemdir 

Kolbrún Hilmars, 26.9.2012 kl. 14:59

9 identicon

Ég veit nú ekki alveg hvað er að manninum, en hann er meira en lítið vitlaus, ef honum finnst eðlilegt, eða sjálfsagt, að opna glugga í flugvélum í 30.000 - 35.000 feta hæð?  Myndi hann ekki strax sogast út um gluggann? Og reyndar flestir sem væru i vélinni.  Ég hef aldrei á ævinni heyrt neina mannesku láta svona erkivitleysu út úr sér. Ég held að hann ætti bara að draga sig til baka og hætta við framboðið sem fyrst.

Guðrún Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 15:03

10 identicon

Óskaplega getur fólk verið trúgjarnt. Það er augljóst að þessi orð hans voru látin falla í kaldhæðni. Fólk getur haft ýmsar ástæður fyrir því að vera á móti Romney, en það að hann sé heimskur ætti ekki að vera þar á meðal. Það er til skammar hvernig fjölmiðlar matreiða þetta ofan í fólk. Og svo halda Íslendingar að Bandaríkjamenn séu illa upplýstir.

Bjössi (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 15:26

11 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Bjössi, það ER forsetabarátta í USA.  Stuðningsmenn beggja kandídata grípa fegins hendi alla misheppnaða brandara og ambögur mótframbjóðandans.    Megum við hér á landi ekki skemmta okkur svolítið líka?

Í þessu tilviki er "brandarinn" þó nokkuð athyglisverður og alþjóðlegur:  Hvernig er brugðist við hinum ýmsu uppákomum í háloftunum?

Kolbrún Hilmars, 26.9.2012 kl. 15:45

12 identicon

Kolbrún, það er í góðu lagi að hafa gaman af þessu öllu saman. Það sem mér blöskrar er slagsíðan í fréttaflutningi. Þá er ég ekki bara að tala um sjálf málefnin, heldur það að hér á landi er dregin upp skrípamynd af öðrum frambjóðandanum og allt gert til þess að láta hann koma sem verst út. Ef Obama hefði sagt nákvæmlega það sama er næstum því 100% víst að þú hefðir aldrei heyrt um það - enda var ekki um neina raunverulega frétt að ræða. Fjölmiðlar hafa ábyrgðarhlutverki að gegna og eru margir hverjir að bregðast því illa.

Bjössi (IP-tala skráð) 26.9.2012 kl. 16:11

13 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Bjössi, svona almennt hef ég ekki nokkurn áhuga á þessum bandarísku forsetaframbjóðendum og orðsnilld þeirra. 

Hefði aldrei bloggað um þetta sýnishorn ef efnið hefði ekki vakið athygli mína.

Kolbrún Hilmars, 26.9.2012 kl. 16:43

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hvern ertu eiginlega að verja hér Bjössi?  Ekki hef ég áhuga á forsetakosningum í BNA, hef bara gaman af því þegar fólk blottar sig sona.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.9.2012 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband