Óvíst að þetta sé rétt mat hjá Lilju

Þeir sem hafa tekið þátt í skoðanakönnunum af þessu tagi vita hver spurningin er: "Muntu kjósa einhvern eftirtalinna stjórnmálaflokka, eða EITTHVAÐ annað".

Flestir (sem á annað borð taka afstöðu) hugsa með sér hver fjórflokksins sé skárstur og svara í samræmi við það.

Það fæst engin gagnleg niðurstaða í þessum skoðanakönnunum fyrr en alvöru valkostir verða í boði.

Eða hver var niðurstaðan í skoðanakönnun um borgarstjórnarkosningarnar - þeirri síðustu, ÁÐUR en Besti varð valkostur?


mbl.is „Þjóðin vill óbreytt flokkakerfi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kolbrún er ekki líka spurt, ef ekkert annað er valið, myndirðu kjósa Sjálfstæðisflokkinn?  Minnir það einhvernveginn.  Þess vegna mælast þeir alltaf frekar háir í skoðanakönnunum.  Sammála að þetta breytist ekkert fyrr en alvöru framboð fara að láta kræla á sér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.10.2011 kl. 19:31

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ásthildur, í þeim skoðanakönnunum Gallup sem ég hef tekið þátt í er engin svona flóttaspurning með XD. Hef alltaf sloppið með mitt klassíska "skila auðu".

A.m.k. hefur aldrei hvarflað að mér að kjósa bara "eitthvað". :)

Kolbrún Hilmars, 10.10.2011 kl. 19:56

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Kolbrún,það hefði ég getað sagt mér,þú kýst ekki bara eitthvað!!

Helga Kristjánsdóttir, 10.10.2011 kl. 21:39

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég held að Bestiflokkurinn hafi gengið frá því að nýjir flokkar verði virtir að vetthugi hvað varðar traust, aftur á móti gæti flokkur sem lofar allt fyrir ESB fengið ESB sinna til sín og þannig komið sem nýtt afl á móti ESB andstæðingum...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 10.10.2011 kl. 22:47

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Stjórnmálaflokkar eru ekki byggðir upp á grunni lýðræðis, heldur sérhagsmuna-klíkuhagsmunum (fyrir utan Besta flokkinn). Svo standa auðmannaklíkurnar í bakherbergjunum og rétta fram peninga og embætti til þeirra gráðugustu og hungruðustu, og toga í stjórnarspottana til að skattauðurinn af launum almennings renni í ránsbankana þeirra, eins og gamli Rokkefeller-svika-auðmaðurinn í USA gerði, til að blekkja fram traust hjá almenningi (kosningatraust).

Ef einhver trúir því ennþá að Ísland þurfi á slíkum niðurrifsöflum að halda, þá er ekki von að vel gangi hjá lýðnum í landinu.

Gallup er Galla-uppistand, og það ætti flestum að vera ljóst að þessar kannanir eru keyptar, falskar skoðanaþvinganir, og til þess gerðar að mynda skoðun hjá villuráfandi, sviknum og rændum lýðnum.

Gangi Lilju M. og okkur öllum sem allra best að berjast gegn sérhagsmuna-klíkunum svikulu.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.10.2011 kl. 23:59

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Anna Sigríður mín, ég þekki vel til Frjálslyndaflokksins, var þar í miðstjórn og átti þátt í að vinna að málefnasamningi hans.  Þar er samvinna en ekki valdaklíkur, enda okkar fólk virkt í mótmælunum bæði búsáhaldabyltingunni og tunnunum og líka borgarafundunum.  Það eru ekki allir flokkar klíkusamfélagl.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.10.2011 kl. 00:07

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ég er nú ekki alveg sammála þér núna, Anna Sigríður.  Skoðanakannanir Gallup eru marktækar í sjálfu sér, hver sem "kaupir" þær.  Auðvitað má leggja spurningarnar upp á ýmsan máta og þannig "for-hanna" svörin ef svo ber undir, en yfirleitt birtir Gallup niðurstöður með því að segja fyrir hvern könnunin var gerð.  Síðan getur hver dregið sína ályktun í framhaldinu.

Sjálf hef ég í nokkur ár verið þátttakandi í svokölluðum viðhorfahópi Gallup, þar sem spurningarnar snúast um allt milli himins og jarðar, þám pólitík, en hef aldrei fundið fyrir neinni "skoðanahönnun" þar.  Yfirleitt nokkurs konar já og nei spurningar þar  

Ingibjörg, þetta var líka sagt um Borgarahreyfinguna - en eru þetta ekki bara vaxtarverkir nýrra tíma í pólitíkinni?

Ásthildur, ég á stefnuskrá FF og sé bara hreint ekkert athugavert við hana.

Kolbrún Hilmars, 11.10.2011 kl. 12:55

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að heyra það Kolbrún mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.10.2011 kl. 12:58

9 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Helga,  ekki ætlaði ég viljandi að gleyma að svara þér -  takk fyrir góð orð 

Kolbrún Hilmars, 11.10.2011 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband