30.9.2010 | 14:24
Þökk sé Herði ef hann er tilbúinn til þess að leiða ný mótmæli
Krafa dagsins er í rauninni aðeins ein; að núverandi ríkisstjórn víki og við taki utanþingsstjórn. Sú utanþingsstjórn verður að vera skipuð óflokksbundnu hæfileikafólki.
Það verður aldrei sátt um landsstjórnina fyrr en fjórflokkurinn fær að hvíla sig í nokkur ár.
Reiðin ráði ekki för | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
...
Surtur fer sunnan
með sviga lævi,
skín af sverði
sól valtíva.
Grjótbjörg gnata
en gífur rata,
troða halir helveg,
en himinn klofnar.
Vituð ér enn, eða hvað?
(Eddukvæði)
Men do not differ much about what things they will call evils;
they differ enourmously about what evils they will call excusable.
(Chesterton)
"What is life but a series of sharp corners, round each of which Fate lies in wait for us..."
(Wodehouse)
How can you have solutions if no one is allowed to talk about the problems?
(Edge of Eternity)
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Heimssýn
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Auðun Gíslason
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Axel Þór Kolbeinsson
- Aztec
- Ágúst H Bjarnason
- Árný Sigríður Daníelsdóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Baldur Hermannsson
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Birgir R.
- Bjarni Harðarson
- Björn Emilsson
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Erla Magna Alexandersdóttir
- Erla J. Steingrímsdóttir
- Eskil
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Guðbjörn Jónsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðni Karl Harðarson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Gunnar Heiðarsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Halla Rut
- Halldór Jónsson
- Hannes
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hildur Sif Thorarensen
- Hrannar Baldursson
- Riddarinn
- Hulda Haraldsdóttir
- Högni Snær Hauksson
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Ísleifur Gíslason
- Jóhann Elíasson
- Jón Valur Jensson
- Jón Óskarsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Svavarsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ómar Bjarki Smárason
- Óskar Helgi Helgason
- Páll Vilhjálmsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Ragnar L Benediktsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rannveig H
- Sigrún Jónsdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Skattborgari
- Sólveig Þóra Jónsdóttir
- Stefanía
- Steingrímur Helgason
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Valan
- Þór Jóhannesson
- Þórarinn Þ Gíslason
- Vefritid
- Vinstrivaktin gegn ESB
- Samstaða þjóðar
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Íslenska þjóðfylkingin
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er alveg hjartanlega sammála þér.
Ingibjörg Kristrún Einarsdóttir, 30.9.2010 kl. 14:37
Ég vil enga utanþingsstjórn heldur vil ég kosningar og ég vil þær strax.
Þetta er fólkið sem við völdum og fengum það sem við áttum skilið.
Kominn tími á að velja aftur.
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 30.9.2010 kl. 14:49
Ekki sakna ég Harðar. Ég sé enga lausn í því að hvetja til ofbeldis og árása á opinberar stofnanir. Merkilegt hvernig maðurinn hvarf gersamlega af sjónarsviðinu þegar VG var komið í ríkisstjórn. Svo þykist þessi maður þess umkominn að hvetja fólk til stillingar...
Emil Örn Kristjánsson, 30.9.2010 kl. 15:11
Hörður er úlfur í sauðagæru og það virkar ekki með hans lagi! það var ekki fyrr en hann gekk til hliðar þá fóru menn að tala en ekki kalla eitthvað út í loftið aftur og aftur og engin hlustaði! Nú er tíminn þrotinn og ekki neitt í stöðunni annað en koma þessum fjórflokkum frá núna!
Sigurður Haraldsson, 30.9.2010 kl. 15:19
Svona var Spánn í gær.
Magnús Sigurðsson, 30.9.2010 kl. 15:47
Kærar þakkir fyrir innleggin og Ingibjörgu fyrir samstöðuna
Adda, velja hvað? Sem stendur er ekkert annað í boði en endurvinnslan.
Emil, ef Hörður býðst til þess að leiða ný mótmæli gegn núverandi stjórnvöldum, ofbeldislaust, er þá nokkur ástæða til þess að hafna því?
Sigurður, það er áreiðanlega ofrausn að eigna Herði þau mistök að leiða "norrænu velferðarstjórnina" til valda. Þar komu til önnur og öflugri öfl.
Magnús, svona uppákomur þurfum við að forðast, þetta er að gerast víða úti í hinu heilaga ESB, og eins og margt annað sem þaðan kemur segi ég bara Sama og þegið!
Kolbrún Hilmars, 30.9.2010 kl. 17:34
Kolbrún þetta hef ég verið að tala um og er því hjartanlega samála
Sigurður Haraldsson, 30.9.2010 kl. 18:31
Hörður hvatti aldrei til ofbeldis. Hann tók það oft og skýrt og greinilega fram að ofbeldi yrði fólk að forðast.
Árni Gunnarsson, 30.9.2010 kl. 19:31
Árni, þetta er rétt hjá þér, Hörður bað fólk margoft að sýna stillingu. En svokallaðri búsáhaldabyltingu var stolið í skjóli mótmælanna og það voru þjófarnir sem beittu ofbeldinu.
Ég gæti ímyndað mér að Hörður kunni þeim engar þakkir fyrir frekar en við hin...
Kolbrún Hilmars, 30.9.2010 kl. 20:55
Árni og Kolbrún, ykkur misminnir. Hörður Torfason ól á reiði fólks og spanaði það upp til ofbeldisverka auk þess sem hann berum orðum hvatti til þess að ráðist yrði á lögreglustöðina. Eina ástæða þess að hann reynir að tjá sig í dag er til þess að hlífa vinum sínum í VG. Hann er svo tvöfaldur í roðinu að það full ástæða til þess að hafna því að komi nokkuð nálægt mannamótum yfirleitt.
Emil Örn Kristjánsson, 30.9.2010 kl. 21:21
Emil, mig minnir að kona ein, best látin ónefnd hér, hafi hvatt til þeirrar árásar?
Kolbrún Hilmars, 30.9.2010 kl. 22:06
Mikið rugl er í gangi hér, Hörður Torfa var einn mesti hvatamaður að ofbeldi sem fyrirfinnst. Svo vill hann auðvitað ekki fara gegn sínu fólki, VG, eðlilega. Finnum annan leiðtoga og hendum Herði út í hafsauga ásamt Steingrími stórlygara.
Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 22:31
Hmmm, Örn, þetta er nú Nöldurhornið en það má vel vera að Ruglhornið væri heppilegra nafn?
Mér er sama hvert Steingrími verður hent en ef hann þarfnast félagsskapar þar er Hörður ekki sá fyrsti sem mér dettur í hug...
Kolbrún Hilmars, 30.9.2010 kl. 22:42
Sízt myndi ég halda því fram að Hörður Torfason hafi verið einn að verki, Kolbrún. Ég veit vel hvaða konu þú er að tala um, en það firrir Hörð engri ábyrgð. Hann var í aðstöðu til að hvetja til ofbeldisverka úr ræðustól á Austuvelli sem útvarpað var frá í "útvarpi allra landsmanna" og hann gerði það. Ég hlustaði á þessa útsendingu og ég man enn hvað það fór um mig að hlusta á hann... og enn meir þegar í ljós kom hvaða afleiðingar orð hans höfðu.
Emil Örn Kristjánsson, 30.9.2010 kl. 23:33
það verður að setja lög og banna 4flokka með öllu... allir sem eru viðriðnir þessa flokka eiga ekki að fá að gegna ábyrgðarstöðum.
Stundum er nauðsyn að beita ofbeldi til að ná fram réttlæti... Sometimes you have to be a sob if you want to make a dream reality.
Draumurinn um nýtt ísland mun ekki rætast með potta banki og spilerí/ræðuhöldum.
Nú er komið að því að taka á, berjast fyrir rétti okkar, berjast gegn sníkjudyrum íslands.
Halldór Ásgríms fékk gefins 2.6 milljarða, á meðan er verið að bjóða upp almenninng.
Emil er bældur íslendingur, það er alveg ljóst; Sver sig í kyn gamla íslands.
Spurningin fyrir alla islendinga er: Erum við bældir aumingjar með hor og slef, eða erum við menn sem láta ekki bjóða sér meira rugl.
Nú er að velja...
doctore (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 11:12
Einhver frá Írlandi var að setja eftirfarandi athugasemd við myndbandið frá Spáni. Nánast það sama og margir eru að segja hér réttilega. Það er nóg að breyta þessum eina bókstaf sem aðgreinir nöfn landanna til að athugasemdin gæti verið af Eyjunni eða blog.is.
Theódór Norðkvist, 1.10.2010 kl. 22:09
Ég biðst afsökunar á síðbúnu svari við síðustu innleggjum.
Emil, ég held að þarna í restina hafi engu máli skipt hver latti og hver hvatti; mótmælendur voru komnir í ofbeldisgírinn.
Doctore - almennt er ég afskaplega ó-ofbeldissinnuð, en ef ráðamenn þykjast ekki skilja hefðbundin og hógvær mótmæli þarf auðvitað að vekja þá með einhverjum grófari aðferðum. Egg og tómatar eru þó heppilegri en grjót og handsprengjur...
Theódór, írskir skrifa að meira segja sama textann og íslenskir. Og báðir gefa sér að þeir sjálfir muni víkja fyrir fjármálaelítunni. Væri nú ekki nær að reka fjármálaelítuna af höndum sér???
Kolbrún Hilmars, 3.10.2010 kl. 15:20
Kolbrún þú segir: "og velja hvað"
Hvað meinarðu með því? Ertu ekki fylgjandi lýðræðinu? Ertu bara fylgjandi lýðræðinu ef þú ert viss um hvað valið verður? Þurfum við ekki bara að treysta kjósendum til að velja eftir sínum skoðunum og sjá hvað kemur út úr pakkanum?
Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 5.10.2010 kl. 20:12
Kolbrún, það er kannske nokkuð seint að koma aftur inn í þessa umræðu. Það kann vel að vera að það skipti litlu máli hver hvatti og hver latti þegar allt var hvort sem er farið úr böndum, en það er ekki máliðni.
Málið er það að það er furðulegur tvískinnungsháttur hjá Herði Torfasyni að þykjast geta komið fram sem einhhver friðarpostli í dag eftir að hafa hvatt til eignaspjalla og ofbeldis fyrir innan við tveimur árum síðan. Ég furða mig einnig á því að þokkalega vel gefið fólk skuli gleypa við þessu.
Emil Örn Kristjánsson, 6.10.2010 kl. 15:58
Emil, það er aldrei of seint að leggja inn orð á meðan tímamörkin mín leyfa :) Ég er nú ekki trúgjarnari en gengur og gerist, en gleðst alltaf ef einhver vill bæta úr því sem hefur misfarist í hans nafni.
Það er skoðun mín að búsáhaldabyltingunni hafi verið stolið, skipulega, af öðrum öflum en almennir mótmælendur ætluðu sér. Þekki marga sem vikum saman stóðu mótmælavaktina og eru í dag sjálfum sér sárreiðastir.
Adda, mér yfirsást síðasta innleggið þitt :(
Í stuttu máli get ég svarað spurningu þinni með því að ég er fylgjandi lýðræði en andsnúin flokksræði 4flokksins. Þar af leiðandi kalla ég það "endurvinnslu" að ganga til kosninga núna þegar valkosturinn er enginn annar.
Kolbrún Hilmars, 7.10.2010 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.