3.4.2011 | 18:12
Óvænt útspil VG
Jafnvel Samfylkingin hefur stillt sig um slíka hvatningu, þótt ætla megi að henni sé málið skyldara.
Eftirtektarvert var líka að í síðustu auglýsingu Áfram hópsins (með hinum 20 fyrrverandi) var enginn einasti fyrrverandi ráðherra eða mektarmaður gamla Alþýðubandalagsins.
Hefur VG verið hótað stjórnarslitum ef kosningaúrslitin segja NEI?
![]() |
Hvetja félagsmenn til að kjósa já |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.4.2011 | 13:40
Samviska eða samviskuleysi
Áróðurinn "JÁ við Icesave" hefur að miklu leyti beinst að samvisku þjóðarinnar. Vegna þess að íslenskur almenningur hafi notið góðærisins á árunum fyrir hrun beri honum að borga brúsann.
En hvernig má meta það til samsektar að hinn vinnandi maður hafi fagnað því að hafa næg atvinnutækifæri - jafnvel þokkaleg laun, og bærileg lífskjör? Mátti hinum sama manni vera ljóst að tækifærin hans byggðust á erlendri lántöku? Hafði hann hugmynd um tilvist Icesave?
Það má til sanns vegar færa að þjóðin hafi notið góðæris á meðan það stóð. Því má þó ekki gleyma að erlendar lántökur stóðu undir því. Almenningur hefur einmitt verið að súpa seyðið af þessum lántökum síðustu þrjú árin og mun gera áfram um enn fleiri ár. Hvað Icesave varðar þá hefur ekki verið upplýst hvort - og þá að hve miklu leyti, sú innlánssöfnun var flutt til Íslands.
Að bæta Icesave skuldahala fjárglæframanna ofan á núverandi skuldabagga örfárra íslenskra skattgreiðenda; ÞAÐ kallast samviskuleysi!