30.11.2019 | 13:03
Hvað með EES samninginn
og hið frjálsa fjármagnsflæði? Er það lagalega heimilt að brjóta hann á þennan hátt?
Geta ekki þjónustað viðskiptavini með erlendar millifærslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2019 | 13:23
Algjört skeytingarleysi um eigin hagsmuni
myndi ég kalla þetta. Er stéttarfélag sjúkraþjálfara óvirkt?
Verða dregnir til ábyrgðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2019 | 17:09
Einkabanki getur leyft sér ýmislegt
af þessu tagi en ríkisbanki ekki. Eiginlega þarf ekki að hafa fleiri orð um það!
Segir áætlun Íslandsbanka kjánalegt ofstæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2019 | 12:50
Heimsmarkmið SÞ?
Nefnt er að þau séu fjögur, en ekki útskýrð nánar. Hvaða deild SÞ hefur sett þessi markmið, hver eru þau og hver er ætlaður árangur?
Sem kona og eigandi fyrirtækis þætti mér fróðlegt að heyra á hvern hallar helst - og hvort þörf sé á að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur, hugsanlega á heimsvísu.
Kemur Bjarna spánskt fyrir sjónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.10.2019 | 12:57
Gott mál
en svo þarf líka að endurskrifa lögin sjálf og einfalda. Það er óþolandi fyrir þá sem þurfa að vinna samkvæmt lögum að rekast sífellt á allar tilvísanirnar í áratuganna lagabreytingar í smáa letrinu. Viðkomandi er eiginlega jafnnær eftir sem áður!
Við erum fyrst og fremst að taka til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2019 | 16:19
Fortíðin gleymd?
Skammstöfunin SÍBS stendur fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga. Þeir voru býsna margir ættingjar okkar eftirlifenda sem létust úr berklaveiki á árum áður. Þá bauð ríkisvaldið ekki uppá neina meðferð, en samtök "áhugamanna" stóðu að uppbyggingu meðferðarstofnana því ekki gerði ríkið það. Svo sem Kristnesspítali í Eyjafirði, Vífilsstaðir í Garðabæ, Reykjalundur í Mosfellsveit.
Sjálfsagt hefði SÍBS áður átt að leggja Reykjalund niður og selja ríkisspítölum aðstöðu sína í Mosfellssveit, líkt og hinar meðtöldu í stað þess að umbreyta aðstöðunni í meðferð annars konar fötlunar og veikinda. Sennilega gerir félagið það núna - verði okkur öllum að góðu.
Þjónusta verði ekki veitt af áhugamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2019 | 13:10
Hvað gerir Nató?
Fimmta greinin sem vísar til samstöðu ef ráðist er á aðildarríki getur varla náð til þess þegar aðildarríkið ræðst að fyrra bragði inní nágrannaríki - eða hvað?
Engin töfralausn við árásum Tyrkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2019 | 17:09
Svona líta hraðbrautir út á meginlandinu
Hægri akreiknin samfelld lest svona flutningabíla. Það sem meira er; bílstjórarnir eru ekki sofandi! Aðeins heimamenn vita hvar þarf að svína á lestinni en ferðamenn á bílaleigubílum sjá ekki einu sinni skiltin sem vísa til vegar eða út af hraðbrautinni.
Á sunnudögum eru þessir flutningabílar hins vegar bannaðir í umferðinni.
Lögðu sig í bílunum á stofnbraut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2019 | 16:39
Mikilvægasta gildið
er að við drepum ekki forsetana okkar. Öll sú viðhöfn/fyrirhöfn sem þessi stutta heimsókn bandaríska varaforsetans útheimti var í varnarskyni fyrir hann sjálfan, byggt á reynslunni. Það búa ekki allir við þau gildi sem hérlendis eru í heiðri höfð.
Þegar Guðni hitti Pence: Myndskeið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2019 | 16:42
Óætt ávaxtahýði?
Við röspum niður hýðið af sítrónum í matargerð - notum hýðið af appelsínum í sultur. Allt samkvæmt mataruppskriftum. Enginn hefur hingað til sagt annað en nýta beri hýðið.
Skordýraeitrið í innfluttum matvælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |