Alþjóðlegt vandamál sem þarf að taka á fyrr eða síðar.

Þessi samtök, OPT, eru athyglisverð. Þau skilgreina  fólksfjölgunarvandamálið á heimsvísu og nefna lausnir.    Eftirfarandi er aðeins hluti af fyrirsögninni á  heimasíðu samtakanna en fyrir þá sem hafa áhuga er veffangið:  www.optimumpopulation.org:

"What's the population problem?

Dangerously rapid climate change and rising food, water and fuel scarcity are already threatening human populations. And many other species, on a finite planet.

Yet by 2050 world population is expected to grow by another 2.3 billion from today's 6.8 billion - unless urgent action is taken."

What's the population solution?

"GLOBALLY: reduce birth rates.

NATIONALLY: reduce or keep birth rates low and/or balance migration to prevent population increase. All countries need environmentally sustainable population policies to underpin other green policies.

PERSONALLY: have fewer children and work a few more years before retiring."

OPT býður upp á mannúðlegri lausnir til þess að halda fólksfjölgun í skefjum en stríð, hungur, sjúkdóma, náttúruhamfarir og fóstureyðingar. 

 

 


mbl.is Attenborough vill draga úr fólksfjölgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hannes

Þetta er eitt mest aðkallandi vandamál sem mannkynnið mun standa fyrir á þessari öld sem núna er að byrja og þau lönd sem eru fátækust fjölga hraðast og þau eru þegar mörg hver orðin allt of fjölmenn.

Hannes, 14.4.2009 kl. 22:27

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sæll Hannes, þetta er Vandamálið með stórum staf.  Stjórnmálamenn humma fram af sér að gera neitt í málunum því enginn vill verða óvinsæll í sögunni og þótt þeir hittist á fínum alþjóðlegum ráðstefnum þar sem rætt er um mengun, vatnsskort, matvælaskort og aðrar hörmungar þorir enginn að taka af skarið og ræða undirrót vandans - sem er offjölgun mannkyns. 

En það er bara gálgafrestur; ef menn ekki horfast í augu við hinn raunverulega vanda þá endar það með ósköpum. 

Kolbrún Hilmars, 14.4.2009 kl. 22:45

3 Smámynd: Hannes

Sæl Kolbrún. Það er eitt ríki sem hefur tekið á þessu vandamáli og það er Kína enda sjá þeir fram á stórfeld vandamál útaf fólksfjölda ef ekkert verður að gert.

Ríki eiga við mismikinn vanda að stríða útaf fólksfjölda í framtíðinni og þau ríki sem eru í verstum málum þurfa að taka á honum fyrst.

Hannes, 15.4.2009 kl. 01:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband