Gengi íslensku krónunnar styrkist - hægt og bítandi.

Útflutningsfyrirtækin hafa notið gengishruns krónunnar og vilja áreiðanlega (að vanda) viðhalda því ástandi sem lengst. 

En innflutningur er ekki síður mikilvægur.  Hérlendis þarf að flytja inn öll nauðsynleg tæki og vélar fyrir atvinnufyrirtækin; útflutningsfyrirtæki sem önnur.  Skynsamleg gengishækkun gerir þessum aðilum auðveldara að endurnýja tækjabúnað eða einfaldlega kleift að ráða við innkaupin í stað þess að leggja niður starfsemina vegna tækjaskorts.

Það sem ég hef þegar séð í bókhaldsuppgjöri innflutningsfyrirtækja vegna ársins 2008 er svo stórfellt gengistap að ríkissjóður kemur ekki til með að innheimta af þeim neinar skattatekjur umfram tolla og virðisaukaskatt á þessu ári - ef til vill lengur.

Nú hefur gengisvísitalan lækkkað niður í u.þ.b. 190 stig - en betur má ef duga skal.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu !!!!!!  ég fékk allt í einu flugu í hausinn, sem getur varla verið rétt,  en hvar vinnur þú Kolla? ef þú vilt ekki setja það hér inn plís sendu mér það í pósti.

(IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 18:55

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Umm, ég vinn í fjármálageiranum (ekki í bankakerfinu þó!) og er bundin þagnarheiti gagnvart mínum viðskiptavinum.  Þá sjaldan ég tjái mig um fjármál reyni ég að gera það svona á almennum nótum. 

Ætla nú ekki að notfæra bloggið til þess að auglýsa starfsemi mína neitt frekar en sendi þér póst 

Kolbrún Hilmars, 9.3.2009 kl. 19:10

3 identicon

(IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband