20.9.2008 | 22:24
Til þess að þóknast klukkinu
og Skattborgara
4 störf um ævina - í tímaröð til 6 ára eða lengur:
bankastörf, aðalbókari í "kerfinu", stéttarfélagsstörf, eigin rekstur
4 bíómyndir, valdar af handahófi:
Fantasía, The Birds, They shoot horses, don´t they?, Karlakórinn Hekla
4 búsetustaðir:
Flateyri, Borgarfjörður, Kópavogur, Reykjavík
4 staðir í fríum, valdi nokkrar eyjar, hinir eru of margir:
St.Thomas, Jersey, Singapore, Batam
4 netsíður utan bloggs:
Veðurstofan, BBC, CNN, Yahoo
4 uppáhalds"matar":
Lambahryggur, Sole meunière, humarsúpa, skelfiskveisla
4 bækur, þar vandast málið!:
Silver wings santiago blue, The pillars of the earth, Glide path, Öldin okkar, svo ég nefni nú bara þær sem síðast vermdu náttborðið mitt
Hér með er kvöðin upptalin en þar sem ég er síðust í mark er enginn eftir til þess að klukka - nema að byrja upp á nýtt?
Athugasemdir
Ég var að vonast til að sleppa við þetta vesen en það er bara allir búnir.
Þarf að skreppa til Singapure við tækifæri það er víst fallegt þar
Kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 21.9.2008 kl. 03:14
Singapore er áreiðanlega snyrtilegasta borg í heimi, en landrýmið er ekki mikið. Sveitin er á norðurhluta eyjunnar en borgin sjálf stendur syðst þar sem Kínahafið og Malakkasundið mætast. Sagt er að þar sé skipaumferð meiri en annars staðar á hnettinum og það er ógleymanlegt sjávarútsýnið úr lofti yfir borginni. Ég var svo heppin að fá að sitja í stjórnklefa flugvélarinnar í lendingu þegar ég kom þangað.
Svo er bara yfir eina brú að fara yfir sundið til Malaysiu og stutt sigling til nærliggjandi eyja Indónesíu, svo sem Súmatra.
Kolbrún Hilmars, 21.9.2008 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.