Þjóðinni var gefinn flugvöllurinn

á sínum tíma - auðvitað á þjóðin að ákveða hvað hún vill gera við hann.

Sjálf er ég hvoru tveggja; borgarbúi og þegn landsins í heild, og eindregið meðmælt því að skipulagsvald borgarinnar verði skert í þessu máli.  Ekki aðeins skynsemin býður mér að okkur sé hollast að halda flugvellinum með tilheyrandi flugrekstri óbreyttum, heldur fagurfræðin líka.  

Þeir sem efast um fagurfræðina mega gjarnan gera sér erindi niður á Skúlagötu og skoða útsýnið þar til suðurs. 


mbl.is Þjóðin ákveði framtíð flugvallarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þá ætti þjóðin að kaupa byggingarréttinn og greiða svo útsvar á hverju ári eins og þarna byggi fólk. Það er nefnilega engin sanngirni í því að þjóðin segist eiga flugvöllinn en reykvíkingar sitji uppi með kostnað og töpuð tækifæri til hagræðingar og tekjuöflunar á sínu landi.

Svo er aftur spurning hvort ég gæti gefið granna þínum holu sem ég græfi í þínum garði. Og hvort þér bæri þá að viðhalda holunni og mættir ekki yfir hana moka. Hvað var það sem Bretar áttu þarna til að gefa annað en nokkrar byggingar?

Ufsi (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 17:22

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ufsi, alltaf fúll á móti? 

Kolbrún Hilmars, 5.11.2014 kl. 17:31

3 identicon

Verð að gefa Pollíönnum smá veruleikatengingu.

Ufsi (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 17:39

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er verðugt hlutverk í sjálfu sér, en leysir þó engin þjóðarvandamál.  Eins og þú manst hafði Pollíanna einmitt engar áhyggjur af "stóru" málunum - bara holunum í garði nágrannans...

Kolbrún Hilmars, 5.11.2014 kl. 18:04

5 identicon

Ufsi, borgin hefur gefið allar lóðir í Vatnsmýri hingað til. Borgin fær fasteignagjöld af 60.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði sem þjónar flugvellinum, auk lóðaleigu, fráveitugjöld og viðskipti við OR. Það væri ekki úr vegi að þú kynntir þér betur þetta hjartans mál þitt. 

Sigurður Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 20:22

6 identicon

Og hvað? Hefur borgin afsalað sér réttinum til að selja lóðir með því að gefa lóð? Hefur borgin afsalað sér réttinum til að innheimta gatnagerðargjöld og fasteignagjöld af 1.000.000 fermetrum auk lóðaleigu, fráveitugjalda og útsvars með því að þiggja greiðslur frá aðilum sem þjóna flugvellinum á 60.000 fermetrum?

Borgin fær mjög litlar tekjur af þessu svæði miðað við hvað hún gæti haft og hagræðið af því að losna við þetta skrípi. En það er og verður borgarinnar að ákveða framhaldið, hvert sem það verður, en ekki utanaðkomandi.

Ufsi (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 20:48

7 identicon

Ég þykist sjá að skoðun Ufsa verði ekki haggað. Þetta svæði þjónustar vel á fjórða hundrað þúsund farþega á ári, en sumir vilja heldur sjá 15-20 þúsund manna blokkahverfi. Þá er ekki útséð með að Alþingi hafi afskipti af skipulagsmálum flugvallarins. 

Sigurður Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 21:20

8 identicon

Á fjórða hundrað þúsund farþegar á ári að nota svæðið eru ekki nema um 1000 á dag, en 15-20 þúsund íbúar gera 15-20 þúsund á dag sem nota svæðið. Alþingi getur haft afskipti af skipulagsmálum flugvallarins, en getur ekki komið í veg fyrir að borgin geri hann ónothæfan nema yfirtaka rekstur borgarinnar. Nokkur háhýsi eða gatnaframkvæmdir og flugvöllurinn er lokaður.

Persónuleg skoðun mín skiptir litlu. Ég bý ekki í Reykjavík og eins og flestir sem hafa skoðun á þessu hef notað flugvöllinn tvisvar á síðustu 50 árum. Hann má vera eða fara mér að skaðlausu. Rökin fyrir veru hans eru bara veikari en rökin fyrir brotthvarfi.

Ufsi (IP-tala skráð) 5.11.2014 kl. 22:52

9 identicon

Borgin getur ekki byggt fyrir flugvöllinn, ekki nema með því að brjóta lög.

Sigurður Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 6.11.2014 kl. 13:03

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurður, það er alveg sama hvaða rökum er beitt; skoðun Ufsa og borgarstjórnar verður ekki haggað.   Augu þeirra sjá ekki neitt nema dollaramerki - á veggjum blokkarmúra, jafnvel  þótt grafa þurfi húsgrunnana hálfa leið niður áleiðis til Kína. 

En fari flugvöllurinn úr mýrinni þá stendur höfuðborgin ekki undir nafni (og þjónustu við alla landsbúa) og full ástæða til þess að flytja með titilinn þann.

Kolbrún Hilmars, 6.11.2014 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband