25.1.2013 | 21:12
Er ESB aðeins - Evrópskt Sæluríki Brussel?
Á BBC í dag er grein sem birtist undir "Features" eftir Matthew Price. Sá er fréttaritari stöðvarinnar í Belgíu. Valdir útdrættir úr greininni hljóða svo, lauslega þýddir af undirritaðri:
"Loksins nær Tania Godefroot fremst í röðina. Lítri af mjólk, skaffaður af EU til þess að hjálpa fátækum, fer í pokann hennar. Hún tekur nokkur egg, svolítið af öðrum vörum. Ekki mikið en það munar um allt þessa dagana."
"Tania sér engin merki þess að ástandið sé að lagast: "Það er minna af mat í boði vegna þess að sífellt fleira fólk leitar aðstoðar hér hjá matarbankanum." "
"Matarbankinn (The Food Bank) sem Tania leitar til er í borginni Ghent í N-Belgíu á Flanders svæðinu."
Þess má geta, sem líka kemur fram í greininni, að Tania er í fullu starfi, en er einstæð móðir og endar ná ekki saman.
Svona er ástandið í Belgíu, ekki fjarri aðsetri elítunnar í Brussel!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:50 | Facebook
Athugasemdir
Góð fyrirsögn :-)
Ágúst H Bjarnason, 26.1.2013 kl. 00:45
Þakka þér fyrir, Ágúst
Kolbrún Hilmars, 27.1.2013 kl. 16:44
Já skrýtið! er þetta öll dýrðin sem við getum ekki beðið eftir að komast í?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2013 kl. 20:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.