22.3.2012 | 15:41
Sæbrautin er ónýt
Tek undir með Elínu. Svo virtist sem Sæbrautin gæti orðið afkastamikil akbraut og tekið álagið af "hinni" leiðinni. En Sæbrautin var eyðilögð með tilkomu Hörpu.
Þar er nú á kafla hámarkshraði 30 km, gangbrautarhækkanir og umferðarljós við umferðarljós. Þungaflutningar, sem áður fóru þar um, fara nú um Hringbraut. Eins og við íbúar hér við Hringbraut erum sífellt minntir á; húsin okkar hreinlega hristast þegar ferlíkin aka hjá.
Hringbrautin er fjölmenn íbúagata; allt frá sjó í vestri að Hljómskálagarði í austri. Svo ekki sé nú minnst á gangandi vegfarendur og þær þúsundir sem eiga erindi um og yfir götuna við Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn og Þjóðarbókhlöðu.
Ferjuflutningar á sjó milli bæjarhverfa ættu ekki að vera nauðsynlegir. Líklega nefnir Elín þennan kost til þess að benda á hvað vegatengingin við Vesturbæinn er orðin fáránleg.
Ekki batnar ástandið svo þegar hin fyrirhugaða Landsspítalabygging verður reist.
Elín Pálmadóttir: Bílferju þörf úr Vesturbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Facebook
Athugasemdir
Góð áminnig hjá Elínu og sannarlega réttmæt, ætli ég spaugi ekki við hana, að ég hafi komið með hraðbáti úr Kópavogi vestur á Grandaveg í fermingu barnabarns míns,í byrjun apríl. Maður þarf sannarlega að vera vakandi á þessum fjölförnu götum það er eylífðar stríð um akreinar ,betra að vera búinn að velja sér beygjurein t.d. ætli maður í H. Í. þá tekur löng bið eftir bílum úr gagnstæðri átt,allir þekkja þetta auðvitað. Þess vegna fannst mér hugmyndin um lest frá Vesturbæ,gegnum Öskjuhlíð og suður úr til Reykjanes,s,áhugaverð.
Helga Kristjánsdóttir, 23.3.2012 kl. 00:11
Sammála Kolbrúnu, Elínu og Helgu.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.3.2012 kl. 02:58
Takk fyrir innleggin. Já, greinin hennar Elínar er góð - og þörf.
Kolbrún Hilmars, 23.3.2012 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.