Tvískinnungur

Auðvitað á að loka svona verksmiðjum ef þær menga svo út frá sér að lífríkið í nágrenni þeirra er í stórhættu.

Hvers konar fólk heldur skattleggja megi mengunina í friðþægingarskyni? Verður mengunin þolanlegri lífríkinu ef einhver þriðji aðili getur makað krókinn sinn?


mbl.is Loka ef skattur verður lagður á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl Kolbrún; æfinlega !

Jah; hefði Iðnvæðing 18. aldarinnar, nokkuð átt að eiga sér stað, yfirhöfuð ?

Með fullri virðingu; fornvinkona góð, er Iðnvæðingin - ásamt Sjávarútvegi og Landbúnaði; einhver öflugustu ankeri framþróunar og lífsskilyrða, hinar seinni aldirnar.

Og; tekjur því vart, að snúa af þeirri braut, sé hóflega og skynsamlega, á spilum haldið, í þeim efnum.

Með beztu kveðjum; sem fyrri - úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 16:59

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Óskar minn, þú hefur lesið þetta blogg mitt afturábak ef þú skilur það sem svo að ég sé á móti tæknivæðingu

Þvert á móti er ég að gagnrýna afæturnar sem þykjast bera náttúruvernd fyrir brjósti en eru tilbúnar til þess að gleyma því ef nægir aurar eru í boði.

Kolbrún Hilmars, 22.11.2011 kl. 17:45

3 identicon

Jamm .. ég sé þú tókst eftir því sem blessaðir hugprúðu náttúruverndarsinnarnir okkar  ætla að hoppa yfir.

 Þá staðreynd að mengun er í góðu lagi ef ríkið færð sinn skerf af peningum.

Hlynur Jörundsson (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 20:49

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Rétt eins og brennivínið.

Ragnhildur Kolka, 22.11.2011 kl. 21:32

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Alveg sammála, Kolbrún. Þetta eru hræsnarar

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.11.2011 kl. 21:36

6 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Þetta eru kannski hræsnarar en það er samt einfaldlega búið að undirbúa þetta allt saman með hræðsluáróðri um að þetta og hitt gerist ef ekkert er að gert.

Leikflétta dauðans.

Sindri Karl Sigurðsson, 22.11.2011 kl. 23:25

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Samráðsfundur verður haldinn með nefnd Alþingis og hagsmunaaðilum. Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.11.2011 kl. 07:15

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Nú þegar er fyrirtækið þarna, sem og önnur fyrirtæki, búið að leggja í miklar og dýrar fjárfestingar í síum og öðrum græjum sem gera það að verkum að útblásturinn standist reglugerðir um innihald og þéttleika ýmissa efna. Þetta er kostnaður sem féll á fyrirtækið, ríkinu að fyrirhafnarlausu. Getur fyrirtækið selt hinar dýru síunargræjur núna ef kolefnisskatturinn bætist við útgjöld þess? Eða þarf fyrirtækið að standa undir bæði kostnaði vegna reglugerða, og hinum nýja skatti?

Geir Ágústsson, 23.11.2011 kl. 09:37

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Góður punktur, Geir

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.11.2011 kl. 09:47

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Kærar þakkir fyrir innleggin 

Ragnhildur, einmitt, eins og brennivínið - og aflátssalan hér forðum  

Hin hliðin á málinu er svo, eins og þið hinir bendið á,  íþyngjandi skattar á nú þegar yfirskattlagt atvinnulíf.   Virðist engu skipta hversu vel þau hafa uppfyllt kröfur yfirvalda um mengunarvarnir.

Hlakka til að sjá hvað verður um tómataræktina - sem er jú "eitthvað annað"...

Kolbrún Hilmars, 23.11.2011 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband