18.11.2010 | 16:50
Eitthvað í frásögur færandi
að íslenskur almenningur fikri sig upp húsnæðisskalann? Það hefur áratugum saman tíðkast að fólk kaupi fyrst litlu íbúðina, stækki svo við sig með stærri íbúð, ráðist svo í raðhúsbygginguna og að lokum einbýlishúsið. Grunnurinn að þessu ferli er lagður með fyrstu íbúðakaupunum - ekki þeim síðustu.
Það voru fjöldamargir, ekki aðeins Marinó og fjölskylda, sem voru mitt á milli þegar hrunið varð. Fólk sem átti fullbúið óselt húsnæði sem átti að duga til þess að fjármagna næsta íbúðarstig, en þurfti að brúa bilið með lántökum.
Það fyrsta sem mér dettur í hug er: Hverjum er í hag að reyna að ómerkja málstað Marinós með þessari persónulegu árás?
Að öðru leyti þykir mér betra að málsvarinn þekki þau vandamál sem hann berst fyrir að leysa.
Segir sig úr stjórn vegna umfjöllunar Fréttatímans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Góð færsla og hjartanlega samála þér.
Sigurður Haraldsson, 18.11.2010 kl. 17:19
Takk fyrir það, Sigurður.
Ég ætla að skoða vel allar auglýsingar þessa nýja blaðs, Fréttatímans, og komast að því hverra erinda það blað gengur.
Eitt er víst; við þurfum ekki tvær helgarútgáfur af DV.
Kolbrún Hilmars, 18.11.2010 kl. 20:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.