Vonandi síðasta móðgunin.

Hvað er eiginlega að hjá íslenskum stjórnarliðum?

Fyrir skömmu þurfti Michon del Reya lögmannsstofan að bjóðast til þess að sverja eið að orðum sínum þegar stjórnarliðar drógu heiðarleik hennar og umsögn í efa varðandi störf í þágu íslensku þjóðarinnar.

Nú þarf Alain Lipietz að ómaka sig til þess að endurtaka og staðfesta orð sín í sjónvarpsþætti svo þau skiljist treggáfuðum.

Eva Joly fékk líka á sínum tíma (vitanlega óbein!) skilaboð frá forsætisráðherra um að skipta sér ekki af því sem henni kæmi ekki við.

Ætli það sé ekki hægt að senda þetta fólk til Brussel án þess að Ísland fylgi með í kaupunum?


mbl.is Lipietz vísar gagnrýni á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Þetta er ótrúleg hegðun svo ekki sé meira sagt.

Hrannar Baldursson, 11.1.2010 kl. 18:38

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Vonandi fer stjórnin að ná áttum.

Sigurjón Þórðarson, 11.1.2010 kl. 18:58

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Magnað..

Óskar Arnórsson, 11.1.2010 kl. 19:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe já eigum við ekki bara að prófa að senda þau út á Íslands, og vita hvort þau verða nokkuð send til baka?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2010 kl. 19:44

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Án átti þetta nú að vera.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.1.2010 kl. 19:44

6 Smámynd: Haraldur Hansson

Best að Björn Valur taki að sér verkefni saksóknara og Ólína sér svo um að afgreiða IceSave með glans. Þá erum við laus við kvabb í þessum útlendingum sem skilja þetta ekki.

Haraldur Hansson, 11.1.2010 kl. 20:08

7 Smámynd: Halldóra Hjaltadóttir

Ríkisstjórnin er líka búin að móðga Bandaríkjamenn, enda engin Bandarískur sendiherra á Íslandi... Svo er búið að klúðra fríverslunarsamningi við Kína og móðga bæði Kínverja og Rússa... En það er víst allt í lagi, þar sem þessar þjóðir tilheyra ekki alheimssamfélaginu þeirra

mbk HH

Halldóra Hjaltadóttir, 11.1.2010 kl. 20:25

8 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég er að reyna að móðga Steingrím á síðunni minni, enn hann svarar ekki...

Óskar Arnórsson, 11.1.2010 kl. 20:30

9 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Flokksræðið virkar ekki lengur fyrir okkur þjóðstjórn takk á meðan við finnum leiðir til betri stjórnunar þannig að ef menn gerast sekir um afglöp verði þeir tafalaust settir af.

Sigurður Haraldsson, 11.1.2010 kl. 23:14

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Kærar þakkir fyrir innleggin ykkar.  Bloggið mitt var skrifað í nokkrum flýti og við nánari umhugsun sé ég að síðustu setninguna þyrfti að umorða á þessa leið:

Við gerum hvorki sjálfum okkur né ESB þjóðunum greiða með því að flytja út  til þeirra sundurlyndið og heiftina í íslenskum stjórnmálum.  ESB umsóknarviðræður ætti því að frysta þangað til við höfum mannskap sem treystandi er til þess að umgangast útlendinga á eðlilegan hátt.

Kolbrún Hilmars, 12.1.2010 kl. 13:34

11 Smámynd: Óskar Arnórsson

Má ég leiðrétta þetta aðeins Kolbrún! það þarf ekki að "frysta" umsóknarviðræður um ESB aðild! það þarf að kenna heimskum íslendingum að ESB er ekkert á dagskrá og hefur aldrei verið.

Þjóðin hefur ekki samþykkt þetta og það er algjör tímaeyðsla að láta sér detta í hug að ESB sé nokkuð fyrir Ísland. Allir sem tala "eins og að allir vilja þetta" eru að svíkja og ljúga þessu upp á meirihluta þjóðarinnar...

Þessir íslensku orðaleikir uð "aðild og samræður" eru sama trixið og hefur verið notað á sauðsvartan almúgan í öðrum löndum. 

Í bý í ESB landi og veit hvernig eitt norðurland var dregið á asnaeyrunnum inn í ESB sem núna meirihluti þjóðarinnar harmar, enn þá er það of seint! þetta ESB fólk eru allir réttir og sléttir...ef þú vilt framhaldið, láttu mig bara vita. 

Málið er að íslendingar eru svo miklir hvítvoðungar í alþjóðapólitík að maður bara grætur yfir barnaskapnum í þeim...

Óskar Arnórsson, 12.1.2010 kl. 17:54

12 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Takk Óskar, ég sé að okkur greinir ekki á um ESB aðildina    

Kolbrún Hilmars, 12.1.2010 kl. 19:05

13 Smámynd: Halla Rut

Þetta er svo ótrúleg hegðun að ég fæ hiksta.

Halla Rut , 13.1.2010 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband