Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stefnir allt í rétta átt

- en landamæraeftirliti á að halda óbreyttu; tvöföld skimun og 5 daga sóttkví á milli.
Ekkert valkvæði á að vera um það eins og sóttvarnarlæknir nefnir.
Jólaverslun og aðventuatburðir myndu þá blómstra og við gætum öll átt gleðileg jól með okkar nánustu.


mbl.is Hárgreiðslustofur opna en áfram 10 manna bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er bara að þrauka

í örfáar vikur enn.  Þá getum við öll gert jólainnkaupin óhindruð, farið í jólahlaðborð  og átt skemmtileg jól með stórfjölskyldunni.
Til þess að svo megi verða má EKKI slaka á - á landamærunum!


mbl.is Stór hluti greindist á Norðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arfavitlaus hugmynd

sem kostar að koma á legg "úthlutunarstofnun" á vegum ríkisins og auka við opinbera báknið.  Nær væri, eins og fjármálaráðherra nefnir, að útiloka RÚV frá auglýsingamarkaði.

Raunhæfast væri þó að RÚV keppti við einkarekna fjölmiðla á samkeppnisforsendum  með frjálsum áskriftargjöldum.


mbl.is Fái að ráðstafa nefskatti til einkarekinna miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólíklegt að forsetinn hafi talið fram sjálfur

Allir umsvifamiklir kaupsýslumenn fela sérfræðingum í skattarétti (endurskoðendum) að annast skýrslugerðir sínar til skattsins. 
Hið sama gera íslenskir atvinnurekendur, stórir sem smáir.


mbl.is Trump segist hafa borgað fullt í skatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ef rafmagnið fer

- nú eða tæknin til þess að varðveita rafræna formið þróast áfram og gerir núdagsins kerfi óaðgengilegt?  Væri ekki skynsamlegt að eiga þó frumgögnin á pappír?


mbl.is Ríkið hætti að geyma skjöl á pappírsformi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir teikna sem þora!

Ógleymt er fjaðrafokið þegar spámaðurinn var teiknaður af þeim danska, óbrenglaður í útliti en með logandi sprengju í vefjarhettinum.  Þetta er verra.  Ekki aðeins móðgun við ímynd þessa mannvinar heldur kemur hún að auki "innanfrá".


mbl.is Ætla að segja sig úr kirkjunni vegna auglýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einföld lausn

Krafan ætti að vera skattlaust tekjumark við kr. 300 þúsund á mánuði.  Til þess þarf að hækka persónuafslátt.  Allt annað er tvíverknaður.


mbl.is Atvinnuleysi fjárhagslegt og félagslegt áfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virka göngin eins og flauta

í ákveðnum vindáttum?  Mætti ekki kanna það líka.


mbl.is Fullyrðir að hljóðið komi ekki frá göngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki orðið gott?

Hvernig ætla menn annars að ljúka þessari rússnesku rúllettu með ferðamennskuna?


mbl.is Smitið á Austurlandi tengist lögregluþjónunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert

Ef hundar og kettir smitast jafnt og mannfólkið gæti orðið erfitt með smitrakningu.
Ætti ef til vill að hafa meðal spurninga "er lausagönguköttur á heimilinu"?


mbl.is Fyrsti smitaði hundurinn dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband