28.3.2011 | 17:54
Til hvers?
Er þessum gaurum ekki alltaf sleppt eftir "viðræður" hvort sem er?
Áreiðanlega yrðum við nágrannar mun virkari ef við sæjum einhvern árangur af árvekni okkar.
Það vantar gulrót í þessa hvatningu.
![]() |
Fólk sé á varðbergi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2011 | 17:16
Það er munur á!
Ef þingmaður segir sig úr þingflokki en kýs þó að styðja áfram við vilja kjósenda sinna sem óháður, er ekki sambærilegt við að þingmaður skipti um stjórnmálaflokk á miðju kjörtímabili.
Í fyrra tilvikinu hefur ekkert breyst gagnvart kjósandanum en í hinu síðara hefur þingmaður svikið kjósendur sína.
![]() |
Ásmundur áfram í þingflokki VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2011 | 18:55
Víkja fyrir hverjum?
Sitja þessir stjórnvaldsfulltrúar ekki í bankaráðunum til þess að gæta hagsmuna ríkissjóðs vegna þess að ríkissjóður á hlut í bönkunum?
Það má vel vera að fulltrúar forsætisráðherrans hafi brugðist henni í þessu launamáli, en hún hefur reynt á eigin skinni að frekjan dugir ekki þegar meirihlutinn er á öðru máli.
Það verður fróðlegt að sjá hverjir veljast fyrir hönd ríkisins í stað þeirra fráviknu. Ef nokkrir.
![]() |
Fulltrúar ríkisins víki úr bankaráðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.3.2011 | 22:56
Flókin lánamál - eða ekki?
Nonni nágranni á flott einbýlishús - og ég er auðtrúa nágranni hans. Nonni selur mér því allar innréttingar og tæki í eldhúsinu sínu. Hann lánar mér fyrir kaupverðinu með því að taka veð í láninu, sem er auðvitað veð í innréttingunum sjálfum.
Ég á því eldhúsinnréttingarnar í húsinu hans Nonna en skulda honum jafnframt andvirði þeirra. Samt hef ég engan afnotarétt af innréttingunum mínum í húsinu hans Nonna. Látum það vera, því enn sem komið er hafa engin verðmæti skipt um hendur á milli okkar grannanna. Allt bara á pappírunum!
Nú nú, svo detta á náttúruhamfarir og eldhúsið hans Nonna eyðileggst algjörlega. Þar með innréttingarnar mínar. Í kjölfar þess þarf hann Nonni auðvitað að endurnýja eldhúsið sitt. Hvað gerist þá?
Hefur veðsetningarlánið mitt eyðilagst með innréttingunum mínum? Eða á Nonni nú kröfu á mig að greiða lánið til þess að endurbyggja innréttingarnar?
Var ég innréttingaeigandi, lántaki eða nágrannaábyrgð Nonna?
11.3.2011 | 20:09
Stílbrot í þessari hrinu
því þetta er fyrsti skjálftinn af tugum sem ekki á uppruna "austur af" Honshu heldur undir landi; á vesturströndinni.
Allir eftirskjálftar dagsins hafa verið af svipuðum styrk, 5-7 stig, og þá með upptök á 10 - 40 km dýpi undir sjávarbotni austur af Honshu. Það er greinilegt að virknin hefur verið að færast suður á bóginn og nær landi, í átt að Tokyo.
Þessi einstaki skjálfti í Nigata (mælist 6,2 stig) á uppruna á aðeins eins km dýpi, uþb 200 km norðvestur af Tokyo.
Hvað er eiginlega að gerast þarna hinum megin á hnettinum?
Viðauki: Annar skjálfti að styrkleika 6,6 stig varð núna rétt fyrir kl. 20 með upptök undir sjávarbotni vestur af norðurhluta Honshu. Upptök á sama dýpi og hinn fyrri, eða 1 km. Þar með eru stílbrotin orðin tvö!
![]() |
Annar skjálfti í Japan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2011 | 18:29
Mínir fiðruðu vinir kjósa íslenskt
Fuglafóður (hveitikorn) frá Kötlu er uppáhaldsrétturinn, næst vinsælast er mulið íslenskt allrakorna bakarísbrauð, þriðja vinsælast er heimatilbúinn hafragrautur með vænni blöndu af íslenskri feiti og smjöri. Síst líkar þeim við vítamínbætt, rándýrt fuglafóður frá Spáni.
Í garðinum eru kettir að flækjast svo ég hef þann sið að gefa smáfuglunum á svölunum hjá mér. Starrar og þrestir mæta þar sjaldan, en sólskríkjurnar kunna vel að meta þjónustuna og eru daglegir gestir - heilu hóparnir af þeim.
En semsagt; sólskríkjurnar virðast ekki hrifnar af því sem kemur í tilbúnum pakkningum frá ESB og svei mér ef þær skríkja ekki líka "NEI við Icesave" þegar þær kveðja og þakka fyrir viðgerninginn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.3.2011 | 20:40
Hvað er Sogn?
Eins og hver önnur geðdeild eða réttarfangelsi fyrir ósakhæfa afbrotamenn?
Væntanlega gerir Hæstiréttur kröfu til þess að hlutverk Sogns sé skilgreint áður en dæmt verður í áfrýjunarmálinu.
![]() |
Endurhæfing á Sogni felst ekki í innilokun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2011 | 19:29
Gleðitíðindi?
Spurningin er bara fyrir hvern. Vandlega falið í miðri fréttinni er klausan:
"Sagði saminganefndin að tafir hafi orðið á ákveðnum málum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Vegna þess sé áætlað að útgreiðslur úr búi Landsbanka hefjist 1. ágúst í stað 1. júni eins og var áður áætlað"
Gæti verið að þessi "ákveðnu mál" skipti máli? Svo sem eins og hvort kröfuhöfum verði dæmt dánarbúið eða ríkissjóði upp í Icesavekröfuna.
Önnur "gleðifrétt" var okkur líka birt í dag - sem kemur Icesave ekki við nema óbeint:
"Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2441 milljarði og skuldir 2875 milljörðum. Var hrein staða þá neikvæð um 434 milljarða".
Frábærar framtíðarhorfur - jafnvel þótt Icesave ábyrgðin sé "frátalin"!
![]() |
Endurheimtur batna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |