Íslendingar alltaf fremstir í flokki

jafnvel á bandarískum lista yfir helstu innanhúss óvini bandarísku þjóðarinnar.  Okkar maður trónir þar  heilum 8 sætum ofar en fulltrúi Kína (sem samkvæmt ávirðingum virðist halda fjöreggi kananna í höndum sér). Þeir tveir eru einu "útlendingarnir" sem slysast inn á þennan lista. 

Nú tek ég ofan hárkolluna fyrir Mr Oddsyni, hann er samkvæmt þessu 16. áhrifamesti maður í "ameríkuheimi" - jafnvel áhrifameiri en helsti útlendi lánardrottinn US.

Og svo er fólk að kvarta yfir því að Ísland sé ekki á landakortinu...

 


mbl.is Davíð Oddsson á vafasömum lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gummih

Haha, já. Þetta er frekar súrrealískt. Hver með réttu ráði heldur að heimskreppan sé Davíð að kenna? Það má deila fram og til baka um ástandið hérna á Íslandi - en heimskreppan?!

Annars er nú erfitt að gera mikið úr því að þetta sé álit "ameríkuheims". Til þess eru reyndar eru nú skuggalega fá atkvæði þarna á bakvið - bara rúm 3þús búnir að segja álit sitt á Davíð - stór partur þeirra gæti verið Íslendingar ;)

gummih, 12.2.2009 kl. 17:55

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Baugsmaskínan hefur heldur betur tekið við sér - nú getum við státað okkur af því að eiga óvin heimsins númer 1. Það er greinilegt hvað hér er í gangi.

Það verður gaman að sjá hvernig Time bregst við...

Kolbrún Hilmars, 12.2.2009 kl. 19:28

3 identicon

Ég er alltaf að missa af einhverju er reyndar búin að vera pínu upptekin í dag, en að láta svona fara gjörsamleg framhjá sér er nú alveg óafsaknalegt.

(IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 19:35

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Jahh, Silla, spurning hver er "hissastur" en  svona til þess að útskýra helsta alþjóðlega keppinaut DO sem óvin bandarísku þjóðarinnar: 

"Think of Wen as a proxy for the Chinese government — particularly those parts of it that have supplied the United States government with an unprecedented amount of credit over the last eight years. If cheap credit was the crack cocaine of this crisis — and it was — then China was one of its primary dealers. China is now, far and away, the largest creditor to the United States government, holding an estimated $1.7 trillion in dollar denominated debt. That massive build up in dollar holdings is specifically linked to China's efforts to control the value of its currency, the renminbi, versus the dollar. China didn't want its currency to rise too rapidly against the dollar, in part, because a cheap currency kept its export sector humming — which it did until US demand cratered last fall. "

 

Hvar hinn íslenski  Mr Oddsson passar inn í þetta dæmi er mér hulin ráðgáta...

 

 

Kolbrún Hilmars, 12.2.2009 kl. 20:35

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Fussum svei, þetta er eins og Eurovision.  Nú er DO dottinn niður í 14. sætið og Time flokkar hann sem annars flokks óvin.  Þessum könum er ekki treystandi fyrir flata fimm...

Kolbrún Hilmars, 12.2.2009 kl. 22:18

6 identicon

Gleðibankinn enn á ný   marklaust allt saman.

(IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 22:37

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

16. sætið...við kunnum að taka því

Sigrún Jónsdóttir, 13.2.2009 kl. 00:27

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

  Það var vont en hefur versnað; nú er það 20. sætið!  Okkar maður fær ekki að taka þátt að ári...

Kolbrún Hilmars, 13.2.2009 kl. 15:43

9 identicon

Hann er fallinn verst að hann fattar það ekki sjálfur.

(IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 17:40

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ojú, ætli hann fatti það ekki - en það er ekki víst allir fatti að hann fatti það...

Reyndar bíð ég spennt eftir því að DO víki - á von á því að þá upplýsist hin ýmsu leyndarmál 

Kolbrún Hilmars, 13.2.2009 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband