11.2.2012 | 16:25
Rétt mat hjá fréttamanni
Breiðfylkingin er óskrifað blað og miklu máli skiptir hvernig hún verður skipuð hvað varðar stuðning. Þess vegna eru enn 47% kjósenda (sbr.síðustu skoðanakönnun) óákveðnir.
Ef Hreyfingin verður með er Breiðfylkingin andvana fædd. Að margra mati eiga þingmenn hennar lögheimili hjá núverandi stjórnarflokkum.
Ekki hvarflaði a.m.k. að Lilju-flokknum að bjóða þeim far.
|
Möguleikar nýju framboðanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:36 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
"Hvert skal lýðrinn lúta?
Lögin kann engin fá,
nema baugum býti til;
tekst inn tollr og múta,
taka þeir klausu þá,
sem hinum er helzt í vil.
Vesöl og snauð er veröld af þessu klandi,
völdin efla flokkadrátt í landi,
harkamálin hyljast mold og sandi,
- hamingjan banni, að þetta óhóf standi."
(Úr Heimsósóma Skálda-Sveins, frá 15.öld)
"Afbrot eru að baki öllum stórauðæfum."
(Balzac)
Síðuhöfundur fæst við rekstrarlega sagnfræði.
Sá sem ekki er þess megnugur að skapa söguna, verður að láta sér nægja að skrá hana.
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Samtök Fullveldissinna
-
Heimssýn
-
Þjóðarheiður
-
Auðun Gíslason
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Árný Sigríður Daníelsdóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Baldur Hermannsson
-
Berglind Nanna Ólínudóttir
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarni Harðarson
-
Björn Birgisson
-
Björn Emilsson
-
Daníel Sigurður Eðvaldsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Erla Magna Alexandersdóttir
-
Erla J. Steingrímsdóttir
-
Eskil
-
Eva Hauksdóttir
-
Greta Björg Úlfsdóttir
-
Guðbjörn Jónsson
-
Guðmundur Ásgeirsson
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðni Karl Harðarson
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Gunnar Heiðarsson
-
Halla Rut
-
Hannes
-
Haraldur Hansson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heimir L Fjeldsted
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hildur Sif Thorarensen
-
hilmar jónsson
-
Hjörtur J. Guðmundsson
-
Hrannar Baldursson
-
Riddarinn
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Ísleifur Gíslason
-
Jón Valur Jensson
-
Jón Óskarsson
-
Jón Ríkharðsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Vilhjálmsson
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Kristján Jón Blöndal
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Magnús Sigurðsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Óskar Helgi Helgason
-
Páll Blöndal
-
Páll Vilhjálmsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Rannveig H
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurlaug Guðrún Inga Gísladóttir
-
Skattborgari
-
Sólveig Þóra Jónsdóttir
-
Stefanía
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Vala Andrésdóttir Withrow
-
Þór Jóhannesson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Vefritid
-
Vinstrivaktin gegn ESB
-
Samstaða þjóðar
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 249
- Frá upphafi: 151984
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 112
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






Athugasemdir
Lilja Mósesdóttir er búin að bjóða öllum far.
Það er öllum frjálst að koma með lýðræðislega og réttláta sýn inn í þetta afl.
Hver og einn verður að þora, einn og óstuddur af gömlu flokka-klíkunni, að styðja ótroðna vegferð réttlátara og betri tíma.
Vegurinn að réttlæti verður til á meðan við göngum ótroðnar slóðir.
Hvað hefði Nelson Mandela sagt um réttlætis-mannréttindis-sinnað og fátækt framboð?
Nelson Mandela sigraði, einmitt vegna réttlætiskenndar og fátæktar!!!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.2.2012 kl. 16:48
Anna, þú ert einn sá bjartsýnasti penni sem ég sé á blogginu.
Það er rétt að Lilja býður alla velkomna, en þá meinar hún stuðningsmenn, ekki karaktera sem hún vill stilla upp efst á framboðslistum.
Svo sting ég uppá því, Anna, að þú setjir inn mynd af þér og opnir bloggið þitt aftur. :)
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 16:57
Ég veit auðvitað ekki hvað verður úr framboðinu hjá Breiðfylkingunni, en ég veit að þau hafa verið að tala saman frá því í haust, þegar þau voru að hittast á mótmælafundum og tunnudögum. Þau deila grasrótarmiðstöðinni ásamt öðrum grasrótarsamtökum. Ég held að úr þessu samstarfi hafi ekki orðið ef þau hefðu ekki komið sér saman um grunnlínurnar. Ég þekki mitt heimafólk og veit að þau hafa ákveðnar skoðanir og svo er líka um flesta í hinum samtökunum. Ætli Hreyfingin hafi ekki bara komist inn á þá línu sem verið er að ræða. Mér skilst að gott samkomulag hafi náðst um helstu mál, eins og Heimilin, verðtrygginguna, sjávarútvegsmálin og Stjórnarskrána. Einhver fámennur hópur innan þessarar Breiðfylkingar er á því að skoða ESB málið. En þar er stór minnihluti og ég vona að þau kjosi það út af borðinu með alla slíka drauma. Ég hef allavega tekið það sterklega fram að ég geti ekki stutt neitt framboð sem hefur opna ESB aðlögun í sinni stefnu. Þess vegna ætla ég að bíða og sjá hvað verður. En eins og er lýst mér afar vel á þessa fylkingu satt að segja.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2012 kl. 17:58
Ásthildur, ég hef aðeins fylgst með þessu starfi álengdar, líkt og þú. En ég hef ekki enn heyrt hvað Samtök Fullveldissinna og Lýðræðishreyfingin setja fyrir sig varðandi samstarfið.
Þó þykir mér fáránlegt að Borgarahreyfingin samþykki aðkomu Hreyfingarinnar. Að öðru leyti líst mér vel á viðræðurnar.
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 18:21
Já ég hlakka til að sjá útkomuna eftir fundinn þann 12. er það ekki annars á morgun. Ég samdi í gamni ljóð svona til áréttingar.
ÁFRAM NÝTT ÍSLAND.
Áfram Nýtt Ísland, við ýtum úr vör,
á úfinn og kólgandi marinn.
Með hugsjónir góðar, er hafin sú för
og heilagur rétturinn varinn.
Þegnarnir uppskera eins og þeir sá.
Þetta er alla að kyrkja.
Nú þurfum við atkvæð´ og þau ekki fá
því við viljum mannauðin virkja.
Því réttum við fram okkar hjálpandi hönd,
heitstrengjum - ykkar er valið.
Og biðjum að fljótlega bresti þau bönd
Sem brýnt hafa okkur og kvalið.
Áfram Nýtt Ísland, við siglum þann sjó
Sem samhugur einn getur bundið.
Og finnum þá gleði í hjarta- og fró,
Sem friðþæging ein getur fundið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2012 kl. 18:33
Þetta er vel ort hjá þér Ásthildur. Eiginlega hikstaði ég aðeins á þessu með "friðþæginguna" - en flokka það bara undir skáldaleyfi.
Já, það er rétt, Breiðfylkingarfundurinn er á morgun. Kannski kemst ég - eru annars ekki allir velkomnir?
Hver sem árangurinn verður, þá vonandi rætist ekki gamla máltækið: "Það sem varast vildi hann, varð þó að koma yfir hann."
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 19:38
Kolbrún, það eru allir að sjálfsögðu velkomnir, og meira að segja hvattir til að mæta. Það eru einmitt þeir sem mæta (eða meirihluti þeirra) sem munu ráða því hvað kemur út úr þessu. Það er það skemmtilega við breiðfylkinguna, þar er ekkert fyrirfram grafið í stein af fáum aðilum í lokuðu rými, heldur markaðar breiðar línur og fjölbreyttir valmöguleikar sem áhugasamir þáttakendur ákveða svo hvernig muni líta út í endanlegri mynd. Á nokkuð að gera þetta einhvernveginn öðruvísi?
Kolbrún, þú inntir eftir því hvað standi upp á Samtök Fullveldissinna í þessu sambandi. Það er í raun ekkert annað en nákvæmlega það sem ætti að vera augljóst ef stefnuskrá samtakanna er lesin, eða bara heiti þeirra.
Þess vegna er mikilvægt að þeir sem hafa áhuga á að koma góðri stefnu á framfæri mæti á morgun og leggi sitt lóð á vogarskálarnar. Í Grasrótarmiðstöðina Brautarholti 4, klukkan 12:00 sunnudaginn 12.2.2012.
Góðar stundir.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.2.2012 kl. 21:34
Guðmundur, eftir að samtökin eru búin að sverja af sér þátttöku; hver er þá tilgangurinn með því að mæta?
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 22:00
Það er ekkert að því að mæta Kolbrún ef þú hefur áhuga á því. Þótt Samtök fullveldissinna sem samtök taki ekki þátt í stofnun Breiðfylkingarinnar þá hefur ekki verið lokað fyrir það að samtökin taki þátt seinna meir, en það er eitthvað sem þyrfti að taka ákvörðun um á félagsfundi.
Axel Þór Kolbeinsson, 11.2.2012 kl. 22:43
Axel, er þá ekki kominn tími á félagsfund?
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 22:52
Jú.
Axel Þór Kolbeinsson, 11.2.2012 kl. 22:53
Kolbrún mættu fyrir mig líka
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2012 kl. 22:57
Já það er rétt að engin ákvörðun hefur verið tekin að svo stöddu af hálfu Samtaka Fullveldissinna um formlega þáttöku í neinu. Um þetta gildir að við getum ekki tekið ákvörðun um þáttöku í einhverju sem er ekki vitað hvað er. Það kemur nefninlega í ljós á morgun hvað það verður.
Aðeins félagsfundur samtakanna getur tekið ákvörðun um framtíð þeirra. Stjórnin færi ekki að taka neinar dramatískar stefnubreytandi ákvarðanir nema í samráði við félagsmenn. Sem einstaklingar höfum við einfaldlega eyrun og augun opin og gerum svo upp hug okkar þegar við höfum allar forsendur til þess að gera það.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.2.2012 kl. 23:16
Guðmundur, mér er vel kunnugt um að stjórn samtakanna er vel skipuð af hæfum einstaklingum sem sýna enga ráðríkistakta.
Og ég er fyrir mitt leyti samþykk því að taka ekki þátt í Breiðfylkingunni að svo stöddu. En ef ég ákveð að mæta á fundinum á morgun má ég þá búast við að hitta einhvern samflokksfélaga?
Kolbrún Hilmars, 11.2.2012 kl. 23:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.