Þetta er ljótt - virkilega ljótt!

Ef myndbandið sem fylgir fréttinni er dæmigert, þá eru mótmælendur vopnlausir og rétta fram vopnlausar hendur sínar því til sönnunar en hljóta þung kylfuhögg að launum frá vel vörðum lögregluþjónum.

Það er vel skiljanlegt að mótmælendur hafi slasast í tugavís, en hvernig slösuðust þessir 37 lögreglumenn?


mbl.is Mótmælendur miskunnarlaust barðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Helgason

Þeir eru með vöðvabólgu eftir höggin.......

miklir áverkar

Sigurður Helgason, 28.5.2011 kl. 13:31

2 Smámynd: Magnús Ágústsson

mikid er eg sammala ther Kolbrun allir voru fridsamlegir nema loggan og i edirinn sast logga ad vera ad ogra folki til ad radast a tha VIDBJODUR

Magnús Ágústsson, 28.5.2011 kl. 13:36

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Kolbrún. Þetta eru hræðilegar afleiðingar vestrænnar gjörspillingar og embættis-bankaráns-svikara, sem verður að stoppa! Ég finn til með saklausu fólki sem berst fyrir mannréttindum sínum, og lögreglumönnum sem eru bara venjulegir menn, sem eru kúgaðir af embættis-manna-mafíunni, til að fara svona með saklaust fólkið.

Spilling leynifélaga og embættismanna er komin langt yfir þolmörk almennings, og það eru þessir fáu spilltu embættis-svikarar sem einir bera ábyrgð á þessu ástandi, með sínum eitruðu valda-fyrirskipunum. Það er komið að lokum tortímandi verka og valdatíma þessara illu auðjöfra-ræningja-afla, og réttlæti fyrir almenning tekur við.

Það sjá allir sem vilja horfast í augu við staðreyndirnar, að ekki er hægt að hleypa þessum auðjöfrum svo langt í sinni sjúku spillingu og valdagræðgi, að aftur verði farið á þræla-stigið, sem átti að vera búið að útrýma. En siðblindan og sjúkleikinn er svo gífurlegur hjá auðvalds-embættis-mönnunum, að þeir sjá ekkert og skilja ekkert.

Það kemur skýrt fram í bókinni: FALIÐ VALD, eftir Jóhannes Björn Lúðvíksson, hvernig nokkrar auðmanns-klíkur hafa náð að sölsa undir sig mestan auð vestrænna ríkja. Sú bók ætti að vera skyldulesning hvers mannsbarns á þessari jörð, til að skilja hvernig hryllingnum er stjórnað af fáum siðblindum og fársjúkum mönnum í hinum vestræna heimi. Allar fullyrðingar um að vestrið sé þróaðra og siðaðra en austrið, eru ekki raunhæfar.

Megi Obama ganga sem best að uppræta þessar klíkur og koma á friði í heiminum, með aðstoð almennings, víðsvegar um heiminn. Hann er heill í sínu starfi, og hefur góðu öflin með sér (almenning og góða orku), og þess vegna tekst honum það ætlunarverk.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.5.2011 kl. 13:53

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sigurður, skyldi þó ekki vera?

Magnús, þetta myndband segir meira en allt orðskrúð og er hreint út sagt óhugnarlegt.

Anna, það sorglegasta er að þau stjórnvöld (bæði hér og erlendis) sem gefa sig út fyrir að vera fyrir almúgann hafa svikið þann málstað og dyggari varðhundar fjármálaveldisins finnast ekki. Fari þau öll fjandans til.

Ég myndi ekki heldur veðja á Obama - hann er aðeins enn ein puntudúkkan þarna vestra.

Kolbrún Hilmars, 28.5.2011 kl. 16:32

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það er virkilega vá fyrir dyrum í heiminum nú um þessar mundir!

Sigurður Haraldsson, 28.5.2011 kl. 20:59

6 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Mig minnir endilega að ég hafi einhvertíma heyrt að Nostradamus kæmi inná þessa tíma.........

Eyþór Örn Óskarsson, 28.5.2011 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband